Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1981, Page 31

Æskan - 01.10.1981, Page 31
5. Menntamál. — Sú stefna í menntamálum, sem fylgt er í dag í Bandaríkjunum, átti upphaf sitt í menntasetri, sem Franklín kom á fót til menntunar Ameríkönum í öllum greinum atvinnulífsins. — Þar stund- uöu nám verslunarmenn, hand- iönaðarmenn, vísindamenn o. s. frv. Heimspekideild hans skiptist á skoö- unum við lærðustu menn annarra þjóða. Uppgötvanir. — Hann kannaði undur náttúrunnar. Það sem hann fann létti lífið og auðgaði það. Hann sótti aldrei um einkaleyfi á uppfinningum sínum — t. d. gleraugunum, lækningatækj- um og hljóðfærum. Þetta voru allt saman gjafir hans til þjóða heimsins. Flugdrekinn. — Franklín gerði sína frægustu uppgötvun, er hann fór með einfaldan flugdreka út í hvassviðri, og lét neista af málmlykli. Þá komst hann á snoðir um hið mikla rafmagn, sem býr í eldingunni. Uppgötvun eldinga- varans fylgdi í kjölfarið og við þetta opnuðust nýjar brautir til frekari rannsókna. 6. Löggjafi. — Frá árinu 1754 og síðan var aðalstarf Franklíns við stjórnmál og utanríkisþjónustuna. Hann komst á löggjafarþing Pennsyl- vaníu ríkis og gerðist þar mikill at- kvæðamaður. Hann var gæddur víð- sýni stjórnmálaskörungsins í ríkum mæli og kom það honum að góðu liði, er hann dró upp fyrstu áætlunina um sameiningu amerísku nýlendnanna þrettán. í utanríkisþjónustu. — Spennan milli Bretlands og Ameríku hafði verið að aukast árum saman. Stjórn Breta varð stöðugt gerræðislegri og lögin strangari. Franklín var friðarsinni og reyndi því sættir. Hann fórtil Lundúna fyrir hönd nýlendnanna til þess að beiðast réttlátari stjórnarhátta. Stimpilgjaldslögin. — Hann barðist hörkulega gegn frumvarpi sem lagt var fyrir þingið um að nýlendurnar skyldu greiða há stimpilgjöld af mörgum nauðsynjum, sem fluttar voru til nýlendnanna. En frumvarpið var samþykkt og olli þáttaskilum í sambúð Bretlands og Ameríku. Á þeirri stundu hófst frelsisbarátta Ameríku að marki. 27

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.