Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 40

Æskan - 01.10.1981, Qupperneq 40
 Munið þið eftir honum Óla, sem var svo duglegur að ganga yfir götuna og hjálpaði Evu litlu? Nú skulið þið fá að heyra svolítið skrítið, sem kom fyrir Óla einn daginn. Þetta var um haust, og eins og þið vitið eflaust, verður dimmt, þegar líður á daginn, og mamma Óla hafði lofað honum því, að hún skyldi sækja hann á leikvöllinn áður en dimmdi. Óli var í feluleik við leikfélaga sína, og það var afskaplega gaman. Nú hugsaði Óli sér að leika svo- lítið á hin börnin með því að fela sig reglulega vel, svo hann tók til fótanna, hljóp út af vellinum og faidi sig bak við stórt tré, sem stóð alveg fast við vegarbrúnina, þar sem bílarnir óku framhjá. Óli stóð og beið og beið, en enginn kom. Hann fór að verða þreyttur í fót- unum, svo hann settist niður. En þá gerðist það. Meðan Óli sat og beið, varð dimmara og dimmara úti, og allt í einu heyrði Óli veika, skræka rödd segja: En svei, skammastu þín bara, Óli, að sitja hérna svona nálægt veginum." ,,Hvað, hver er það, sem talar?“ sagði Óli og leit í kringum sig. „Og það er nú bara ég,“ sagði veika skræka röddin á ný. „Ég er kallaður Endurskins- karlinn, og ég geng um og hjálpa þeim börnum, sem ekki eru var- kár í myrkrinu." Jæja, nú sá Óli litla Endurskinskarlinn, sem stóð alveg fast við annan skóinn hans. Óli sá hann alveg Ijómandi vel, því hann lýsti eins og lítill lampi í hvert sinn sem bíll ók framhjá. Nú stökk litli Endurskinskarlinn upp og settist á hönd Óla, og svo sagði hann mjög ákveðinn: „Veistu ekki, að ekki má vera úti ■ myrkrinu, ef maður hefur ekki endurskinsmerki á sér, eða hvað?“ „Hvað er það nú?“ spurði Óli forvitinn. „Það er nú einmitt það, sem veldur því, að ég lýsi svona vel, þannig að allir bílstjór- ar geta séð mig í myrkrinu, og endurskinsmerki eiga öll börn að hafa á sér. Þá lýsið þið alveg eins vel og ég,“ sagði litli Endur- skinskarlinn, „og nú, Óli, skaltu fara heim til mömmu þinnar og biðja hana að kaupa endurskins- merki og sauma það á allar yfir- hafnir þínar. Vertu sæll,“ sagði Endurskinskarlinn. Svo var hann horfinn og Óli fór heim. íþróttaþæftir — Skákþættir — Poppþættir — Flugþættir eru í ÆSKUNNI. 36

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.