Æskan - 01.10.1981, Síða 42
„Plágan"
hans
í fyrrasumar kom á markaðinn
hljómplatan ,,[sbjarnarblús“ með áð-
ur óþekktum söngvara, Bubba
Morthens. Þá strax lá Ijóst fyrir að
eitthvað meira en lítið var á ferðinni.
Bubbi söng sig inn í hjörtu lands-
manna svo um munaði. Hann varð í
einni svipan skærasta poppstjarna
íslands. Pönkarar, diskódansarar og
þrítugir togarasjómenn, jafnt sem
börn og unglingar á öllum aldri, fengu
það sem kallað hefur verið ,,Bubba-
æði."
Núna er komin út önnur einkaplata
Bubba, „Plágan." Á henni koma
ýmsir afbragðskostir poppstjörnunn-
ar skýrt fram: Söngurinn er betri og
kröftugri en dæmi eru um á íslenskum
hljómplötum. Útsetningar eru litríkari
og líflegri en algengt er. Og laga-
smíðar rokk-konungsins eru með því
allra besta sem heyrist hérlendis.
Lögin eru ýmist létt og geysilega
grípandi eða þung og þróuð. Þau
síðarnefndu eru svolítið fráhrindandi
til að byrja með. En við nánari kynni
venjast þau sérstaklega vel.
Textarnir hans Bubba stinga líka í
stúf við þá innihaldslausu „diggy-
liggy-ló“ bulltexta sem einkenna ís-
lenska dægurmúsík. Á „Plágunni"
gagnrýnir Bubbi m. a. stefnu ríkisins í
áfengismálum. Hann bendir á þá
staðreynd að menn fremja allskonar
glæpi gagnvart sínum nánustu og
öðrum í ölvímu. Glæpi sem þeir
myndu aldrei fremja allsgáðir. Áfeng-
ið framleiðir sem sagt glæpamenn og
eyðileggur fjölskyldulíf. Samt stendur
ríkið fyrir áfengissölu og réttlætir
hana með aurunum sem hún gefur í
ríkiskassann. Raunin er engu að síður
sú að þessir aurar standa ekki einu
sinni undir kostnaði af öllum tjónunum
sem áfengisneyslan skapar. Þetta er
umhugsunarvert. Ekki satt?
Bubbi syngur um fleira á „Plág-
unni." Hann hefur ort ástaróð til kon-
unnar sinnar, „Blús fyrir Ingu." Einn-
ig fjallar hann um hættur hafsins o. fl-
Músíkin á „Plágunni" er fjölskrúð-
ug. Þar skiptast á blúsarar, málm-
rokkarar. Veika punkta er hvergi að
finna. „Plágan" er einfaldlega besta
popp-plata sem út hefur komið hér-
lendis.
Markmið ÆSKUNNAR er: Lifandi blað handa ölium
38