Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Síða 50

Æskan - 01.10.1981, Síða 50
Bifreiðin er svo snar þáttur í lífi Ameríkumanna, að erfitt er að trúa því, að hún sé tiltölulega nýlegt tæki. Bifreiðin er hvorki amerísk uppfinning — né uppfinning nokkurs eins manns, heldur margar uppfinningar margra manna nokkurra þjóða. Hins vegar þróuðust fjöldaframleiðsluað- ferðir í Bandaríkjunum, sem gert hafa fólki almennt kleift að eignast bíl — ekki bara þeim ríku. Þjóðverjanum Gottfried Daimler er eignaður heiðurinn af því að hafa gert fyrsta nothæfa bensínbrennsluhreyf- ilinn árið 1885. Einkaleyfi á fyrsta brennsluhreyflinum var veitt í Frakk- landi 25 árum áður. Mismunandi gerðir af slíkum hreyfli voru brátt smíðaðar í Þýskalandi og Bandaríkj- unum. Uppfinningamenn beggja megin Atlantshafsins gerðu tilraunir með vagna, sem ekki væru dregnir af hestum — án þess að hafa minnstu hugmynd um framfarir hvers annars á þessu sviði. Það voru bræður — Duryea-bræð- urnir — sem smíðuðu fyrstu bensín- knúnu bifreiðina í Bandaríkjunum árið 1893. Nokkrum mánuðum síðar lét maður að nafni Elwood Haynes bræður nokkra — Apperson-bræð- urna — smíða einn bíl eftir hönnun, er hann hafði gert. Hinir þrír síðarnefndu sköruðu fram úr á fyrstu árum bif- reiðaiðnaðarins, en Duryea-bræó- urnir bióu lægri hlut í hinni hörðu samkeppni, sökum óvænlegra við- skiptaákvarðana. BIFREIÐIN Fyrstu vélknúnu farartækin höfðu gufuvél. Árið 1769 smíðaði franskur herforingi gufuknúna dráttarvél, en hún var aldrei notuð í hagnýtum til- gangi. Árið 1805 smíðaði Bandaríkja- maðurinn Oliver Evans nokkur farar- tæki til mannflutninga, en andspyrna gegn þessum farartækjum varð til þess, að sett voru ,,rauðveifu“-lög, sem kváðu svo á, að fótgangandi fólk, sem veifaði rauðri veifu, væri rétt- hærra en farartækin í umferðinni. Árið 1892 smíðaði Bandaríkjamað- urinn William Morrison fyrstu not- hæfu rafknúnu bifreiðina. Þar sem hún var knúin af rafhlöðum, var hún hávaðalaus og þýð. Svo virtist sem bifreiðir framtíðarinnar myndu verða rafknúnar. Hins vegar stóðust þær ekki samkeppnina vió bifreiðir knúnar brennsluhreyfli, vegna þess hve hæggengar þær voru og hve tak- markaða vegalengd þær komust, þar til hlaða þurfti rafhlöðurnar að nýiu. Framhald í næsta blaði. Tvíburarnir Francis og Freelan Stanley smíðuðu fyrsta raunverulega hagnýta gufubílinn árið 1896. Þannig voru á tæpum fjórum árum fram- leiddar í Bandaríkjunum bifreiðir, sem notuðu mismunandi aflgjafa. Tak- markanir rafknúnu bifreiðanna ollu því, að slíkir bílar urðu æ minna eftir- sóttir. Þó að gufubílarnir væru hrað- gengari og aflmiklir, fóru vinsældir þeirra minnkandi, að miklu leyti vegna þess, að fólk hafði beyg af að aka í farartæki með katli fullum af sjóðandi gufu. 46

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.