Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 12

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 12
ÆVINTÝRI ÆSKUNNAR Önnur útgáfa af hinni glæsilegur Ævin- týrabók ÆSKUNNAR kom út á síðastliðnu hausti. í bókinni eru heimsfræg ævintýri frá 17 löndum og 155 litmyndir eftir hinn heims- fræga teiknara V. Kubasta, í íslenskri þýðingu Rúnu Gísladóttur. Prentsmiðjan Oddi vann setningu, prentun og bókband. Filmuvinna var unnin í Korpus hf. Bókin er í stóru broti alls 140 síður. Þetta mun vera ein sú glæsilegasta barna- og unglingabók sem út hefur verið gefin hér á landi til þessa. Hér birtist eitt stutt ævintýri út bókinni og nefnist það: Kóngsonurinn og refurinn. Einu sinni var konungur, sem var blindur, og enginn mannlegur máttur gat gefið honum aftur sjónina. Hann sendi því eftir sonum sínum þremur og sagði við þá: „Kæru synir mínir. Aðeins eitt getur gefið mér aftur sjónina, og það er söngur undrafuglsins. En undrafuglinn er í eigu konungs, sem aldrei vill skilja hann við sig. Hann er vondur maður og álítur fuglinn vera dýrmætasta auð sinn.“ „Ég fer samt og reyni að ná undrafuglinum handa þér,“ sagði elsti sonurinn. Hann lagði því af stað á fallegum hesti og með fulla vasa af fé. Þegar hann var kominn dálítið áleiðis, kom hann að veitinga- húsi þar sem margir gestir höfðust við, drukku, sungu og léku sér með teninga. Kóngssonurinn nam staðar til þess að hvíla sig, og honum leið svo vel, að hann gleymdi bæði föður sínum blinda og undrafuglinum Á sömu leið fór með miðsoninn, þegar hann lagði af stað sömu erinda. En þegar yngsti kóngssonurinn kom að veitingahúsinu og sá bræður sína skemmta sér þar við söng og leik, vildi hann ekki staldra þar við stundinni lengur. „Ég er að leita að ykkur," sagði hann, „en ég er líka að leita að undrafuglinum. Nú hef ég fundið ykkur og verð því að halda áfram.“ Hann hélt af stað, og eftir langa ferð kom hann að öðru veitingahúsi langt inni í skóginum. Þar sem myrkur var skollið á, fór hann inn, settist og bað um mat. Allt í einu heyrði hann grát úr næsta herbergi og stökk á fæturtil þess að aðgæta, hver væri svo óhamingjusamur. „Þú getur ekki orðið til hjálpar," sagði þjónustustúlkan snökt- andi. „Þarna í herberginu er maður, sem veitingamaðurinn líflét, af því að hann gat ekki greitt fyrir mat sinn. Hann vill ekki láta jarða hann, því að engir peningar eru fyrir jarðarförinni. Og þess vegna andvarpar hann og grætur, þar til einhver kemur til þess að jarða hann." „Ég skal gera það“, sagði kóngssonurinn. Síðan lyfti hann lokinu af fatinu, en þar voru þá aðeins hnífur og öxi. Nú skildi hann, hvers konar staður þetta var. Veitingamaðurinn lét hann velja milli tvenns konar dauðdaga, ef hann gæti ekki borgað. Hann kallaði hann því fyrir sig og greiddi honum mikla upphæð fyrir líf sitt og auk þess næga peninga til jarðarfarar mannsins í herberginu. En um kvöldið læddust þau óséð frá þessum óhugn- anlega stað, hann og þjónustustúlkan. Hún varð síðan eftir í veit- ingahúsi handan skógarins, en kóngssonurinn hélt áfram. Á leið sinni mætti hann ref, sem heilsaði honum vingjarnlega, spurði 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.