Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 50
INNILEIKIR
Oft getur komið sér vel að geta gripið
til innileikja, þegar t. d. veðrið er vont
og börnin geta ekki leikið sér úti. Þeir
eru líka skemmtilegir, en þátttakendur
þurfa að vera nokkuð margir. Innileikir
voru mikið stundaðir áður fyrr, en
sennilega hefur dregið þó nokkuð úr
þeim og þá er hætt við að þeir falli í
gleymsku. Hér er lýsing á nokkrum inni-
leikjum, sem mikilla vinsælda nutu í tíð
pabba og mömmu, afa og ömmu. Góða
skemmtun!
Leikur með sérhljóða
Einn leikmanna gengur um og spyr
hina hvern af öðrum einnar spurningar
og getur jafnframt um, að einhver tiltek-
inn sérhljóði megi ekki koma fyrir í
svarinu. Svarið verður að vera heil
setning og ekki má á því standa, eða í
því að vera hinn tiltekni sérhljóði. Sé
rangt svarað, er leikurinn tapaður.
Dæmi: A: Hvað hefur kötturinn marga
fætur? Svar án ó. B: Þeir eru tvisvar
tveir. Annað dæmi: A: Hvernig er ís-
lenski fáninn litur? Svar án á. B: Eins
og sjórinn, eldurinn og snjórinn. Þriðja
dæmi: A: Sérðu tunglið? Svar án i. B:
Ekki hér inni. Leikurinn er tapaður.
Að taka inn í
Hermítafélagið
Það er ekkert gaman að þessum leik,
ef allir kunna hann. Hópnum er skipt
þannig, að þeir, sem kunna leikinn, eru
í Hermítafélaginu og eru í einu her-
bergi, en hinir, sem óska að ganga í
félagið í öðru. Félagar Hermítafélagsins
búa sig, einkum þó formaðurinn, all-
skringilega eftir því sem tök eru á. For-
maður gengur í viðhafnarsæti sitt og
fyrsti innsækjandinn er nú látinn koma
inn. Er hann leiddur fyrir formann en
hann spyr hann nokkurra spurninga,
sem innsækjandi svarar. En félags-
menn og formaður herma eftir honum
öll svörin og síðan hverja hreyfingu,
sem hann gerir og hvert orð, sern hann
segir. Þetta halda þeir áfram með
þangað til innsækjandi segir eitthvað á
þessa leið: „Þið hermið allt eftir mér!“
Þá hefur hann uppgötvað leyndardóm
Hermítafélagsins og er lýstur löglegur
félagi. Síðan eru hinir innsækjendurnir
látnir koma inn einn og einn þar til
inntökunni er lokið.
Að þekkja hljóð
Menn setjast í hring, en í miðjum
hringnum er einn með bundið fyrir
augu. Einn af þeim, sem sitja, tekur
utan um báðar hendur blindingsins og
rekur hann aftur á bak niður í kjöltu
einhvers í hringnum. Á þá sá hinn sami
að gefa frá sér eitthvert hljóð, og á því á
blindingurinn að þekkja í hvers kjöltu
hann hefur sest. Sá, sem þekkist þann-
ig, leysir blindinginn af hólmi, en ef
blindingurinn þekkir hljóðið ekki sam-
stundis tekur sá, sem heldur um úlnliði
hans, hann upp og rekur hann ofan í
kjöltu einhvers annars og svo áfram,
þangað til hann þekkir þann, sem hann
sest ofan á.
Læknisráðin
Menn skrifa á vissan fjölda af miðum
sitt sjúkdómsnafnið á hvern og brjóta
það saman og leggja þá í körfu eða
annað ílát. Þá eru skrifaðar eins margar
ráðleggingar á aðra miða, sem síðan
eru látnir í aðra körfu. Að því búnu
gengur einhver sem þykist vera læknir,
á milli allra og spyr þá hvað gangi að
þeim. Hver fyrir sig dregur þá einn af
sjúkdómsmiðunum og sýnir lækninum.
Læknirinn kann strax ráð við þessum
kvilla, gerir sér lítið fyrir og dregur einn
af ráðleggingarmiðunum og les upp
ráðlegginguna.
12. starfsár Tónskóla Fljótsdalshér-
aðs hófst 23. sept. sl. í skólann innrit-
uðust í haust 102 nemendur, þar af 33 í
undirbúningsdeild. Er það veruleg
nemendaaukning frá sl. ári. í haust
hófst nýr kapituli f sögu skólans, er
kennsla var hafin á strengjahljóðfæri
þ. e. fiðlur og selló. Var til þess ráðinn
ungur tónlistarmaður frá Bretlandi,
David Knowles. Hingað til hefurskólinn
eingöngu haft húsnæði í Egilsstaða-
skóla en í vetur fékkst viðbótarkennslu-
húsnæði í Egilsstaðakirkju. Fer þar öll
kennsla á strengjahljóðfæri fram.
Á síðastliðnu ári hefur verulega bæst
við hljóðfærakost skólans en í sumar
festi hann kaup á fiðlum og sellóum
(undirstærðum) sem ætluð eru börn-
um, einnig konsertflygli Yamaha. Á þá
skólinn tvo flygla, píanó og þau
strengjahljóðfæri sem áður er getið svo
og nokkuð af blásturshljóðfærum, sem
lánuð eru til nemenda er þess óska.
Við Tónskóla Fljótsdalshéraðs starfa
nú, auk skólastjórans Magnúsar Magn-
ússonar, tveir fastráðnir kennarar og
tveir stundakennarar.
FRÁ TÓNSKOLA
FLJÓTSDALSHÉRAÐS
50