Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 16

Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 16
Einu sinni var fátæk ekkja, sem átti sjð drengi. En hún átti ekki nokkurn matarbita til í húsinu handa þeim. Og í neyð sinni fór hún til grannkonu sinnar, sem var rík og ágjörn, og sagði við hana: „Aumingja litlu börnin mín eru hungruð, viltu ekki gefa mér mjölhnefa, svo að ég get bakað brauð handa þeim?“ En vonda konan svaraði. „Mér dettur ekki í hug að gefa letingjum nokkurn skapað- an hlut, en þú skalt fá mjöl hjá mér, ef þú nennir að vinna fyrir því!“ Og svo fékk hún ekkjunni tunnusekk af mjöli og sagði henni að sigta það. Þegar ekkjan hafði keppst við í marga klukkutíma var mjölsekkurinn loksins búinn. „Þetta er ekki nóg“, sagði ríka konan. „Nú verður þú að fara út í skóg og bera heim hrís handa mér!" Og aumingja ekkjan, sem var dauðlúin, bar margar byrðar af hrísi heim í eldhús til ágjörnu konunnar. „Nú er best að þú gerir upp eld á hlóðunum hjá mér og þegar því er lokið skaltu fá borgunina!“ Og svo varð ekkjan að gera þetta líka, þó erfitt væri, því að hrísið var rennblautt. Og svo urðu launin þrír hnefar af mjöli, ein lítil skeið af sykri og nokkrir hrískvistir. Þegar hún kom heim, sagði hún: „Ég fékk ekki nema svolitla ögn af mjöli, svo að brauðið verður ósköp lítiðl" Og svo fór hún að hnoða brauðið. Og innan skamms breiddist Ijúfur ilmur um alla stofuna og drengirnir hoppuðu og dönsuðu af kæti og kölluðu: „Góða mamma, viltu ekki lofa okkur að bragða á?“ „Verið þið nú þolinmóðir, fyrst verður hleifurinn að kólna svolítið!" sagði móðirin. En börnin áttu svo bágt með að stilla sig og bíða. En í sömu svifum var barið á dyrnar og konan lauk upp. Fyrir utan var riddari á hestbaki. Hjartagæskan vann sigur á sultinum. ' R , li Launin. „Kona góð“, sagði hann, „ég er einn af riddurum kon- ungsins. Það er sorg hjá allri hirðinni því að einkasonur konungsins, sem er aðeins tíu ára gamall, liggur fyrir dauðanum. Honum býður við öllum mat og allir matsveinar kóngsins eru önnum kafnir dag og nótt við að reyna að brasa handa honum nýja rétti, ef ske kynni að prinsinn gæti borðað þá. En nú hefur vitrasti maðurinn í landinu lánað konunginum töfraspegil, og í honum sá hann, að prinsinn getur ekkert borðað nema brauðið þitt. Konungurinn vill gjarnan greiða þér jafnvægi þess í gulli fyrir það! En vitri maðurinn segir, að það hafi engin áhrif á sjúkdóminn, nema það sé gefið af glöðum hug?“ „Blessaðir, takið þér brauðið", sagði ekkjan hiklaust, „úr því að Guð hefur gefið prinsinum þetta til heilsubótar þá hjálpar hann mér áreiðanlega líka!“ Og svo fór hún inn til drengjanna sinna og sagði þeim, að það væri lítill sjúkur drengur, sem gæti orðið heilbrigður ef hann fengi brauðið þeirra. „Gefðu litla drengnum það, mamma, við komumst ein- hvernveginn af án þess“ kölluðu allir drengirnir samtímis. „Vitri maðurinn sagði líka“, hélt riddarinn áfram, „að gefandinn yrði sjálfur að færa prinsinum gjöfina!“ Og svo varð það úr, að drengirnir sem allir voru jafn hjartagóðir og hún mamma þeirra, báru brauðið til skiptis heim í konungs- höllina, til veika prinsins, en riddarinn vísaði þeim leið. Eftir tveggja stunda göngu komu þeir að konungs- höllinni. Þeir fóru beina leið inn í sjúkraherbergi prinsins, sem lá þar í rúmi sínu fölur og máttfarinn og tók lítið eftir því, sem fram fór í kringum hann. En undir eins og hann sá drengina sjö koma í fylkingu inn gólfið, lifnaði hann við. Hann beit undir eins í brauðið og honum féll það svo vel, að hann át það upp til agna. Og það var gaman að sjá hvernig hann hresstist. Það kom roði í fölar kinnarnar og hann brosti til allra í kringum sig. Drengirnir sjö gleymdu hungrinu við að horfa á, hve prinsinn hafði góða matarlyst 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.