Æskan - 01.01.1983, Blaðsíða 26
**«»<>
Lagt af stað í reiðtúr.
DANSKIR UNGLINGAR
í HEIMSÓKN
Þrjátíu danskir unglingar frá Lynby-Tarbek í
Kaupmannahöfn dvöldu í þrjá daga á Seyðisfirði
upp úr miðjum september sl. Vinabæjatengsl eru
milli þessara staða og komu unglingarnir, sem
eru 15 ára, í för með skólastjóra og kennurum.
„Hér vildi ég eiga heima,“ sagði einn dönsku
unglinganna í lok dvalarinnar. Heimsóknin
heppnaðist vel í alla staði og brostu veðurguðirn-
ir við þeim. Fyrsta dag heimsóknarinnar gengu
unglingarnir hringinn í kringum Bjólf og tók
gangan fimm klukkustundir. Á öðrum degi var
farið á sex trillum til fiskjar. Á þriðja degi var
hópnum deilt í reiðtúr og aðrir fóru á skíði upp í
Gagnheiði. Dönsku unglingarnir létu mjög vel af
dvölinni á Seyðisfirði.
TVÍBURAR
Eru tvíburar þarna um borð í ferjunni? Þeir eru
svo líkir að ekki er hægt að greina hvor er hvor.
Getið þið komið auga á þá?
FIKT OG AVANI
Mörgum hefur orðið hált á því að fikta við að
reykja. Hvort heldur hjá börnum, unglingum eða
fullorðnu fólki þróast það auðveldlega upp í
ávana sem getur með tímanum orðið þrælslega
magnaður, þannig að þörfin fyrir nikótín, ávana-
bindandi efnið í tóbakinu, segi til sín frá morgni
til kvölds. Sumir stórreykingamenn þurfa jafnvel
að vakna á nóttunni til að fá sér reyk. — Þessu
tvennu, fiktinu og ávananum, er vel lýst í með-
fylgjandi myndum sem við fengum úr blaði frá
tóbaksvarnaráði ríkisins í Noregi. En örugg ieið
til að falla ekki fyrir ávananum er að gefa aldrei
höggstað á sér: reykja alls ekki.
Takmark
FIKT OG AVANI
26