Æskan - 01.01.1983, Qupperneq 36
Hinn vinsæli trommuleikari
Art Bears, Chris Cutler.
að upplýsingar um snúningshraðann
eru engar, hvorki á plötumiðanum né
annars staðar. Reyndar er plötumiðinn
Sekki mjög upplýsandi í sjálfu sér. Á
annarri plötuhliðinni er aðeins teikni-
mynd á miðanum en á hinni hliðinni eru
öll lög plötunnar talin upp á fremur rugl-
ingslegan hátt. Það ruglar svo lesand-
ann/hlustandann enn frekar í ríminu að
röð laganna á plötunni er önnur en
gefin er upp í textabæklingnum.
Þetta er víst allt saman með vilja
gert. Þau Dagmar, Fred og Chris Cutler
vilja nefnilega að fólk hafi bæði augu
og eyru vel opin þegar músík þeirra er
meðtekin. Þau vilja ekki fyrir nokkurn
mun að plötur þeirra séu notaðar sem
einhver bakgrunnsmúsík. Þau hafa
Itónlistarlegan metnað og láta hann
ganga fyrir öllu. Þessi metnaður hefur
ekki rænt þau öllum vinsældum því
platan „The World As It Is Today“ hefur
gert það gott á „óháðu" vinsældalistun-
um út um allan heim, m. a. á íslandi.
Endar mælir ekkert í sjálfu sér á móti
því að framsækið rokk verði vinsælt.
Hinsvegar eru vinsældir framsækna
rokksins ekkert atriði fyrir listamennina.
Þær eru miklu frekar ánægjulegur bón-
us ofan á listina sjálfa.
NÝBYLGJU
TRÍÓIÐ
Helga Steffensen og Hallveig Thorlacíus með brúður úr „Átján barna faðir í álfheimum"
sem er ein þjóðsagnanna sem Leíkbrúðuland sýnir í vetur.
LEIKBRUÐULAND
í október síðastliðnum hófst
þrettánda starfsár Leikbrúðulands.
íslendingar hafa lítið fengist við
brúðuleikhús fyrr en nú upp á síð-
kastið og því er ekki hægt að tala um
neina hefð á þessu sviði. Þó vex
áhuginn, því í fyrra var oftast upp-
selt á sýningarnar, sem Leikbrúðu-
land hafði.
Verkefni vetrarins hjá Leikbrúðu-
landi, sem er til húsa á Fríkirkjuvegi
11 í Reykjavík, verða: „Þrjár þjóð-
sögur - Gípa, Umskiptingurinn og
Púkablístran". Brúðuleikhús er sér-
stök listgrein sem lýtur sínum eigin
lögmálum. Það hefur háð brúðuleik-
hússfólki mikið, hversu erfitt er að
afla sér menntunar á þessu sviði.
Hana er nefnilega ekki hægt að
sækja i leiklistarskóla og myndlist-
arskóla nema að litlu leyti. Mál þessi
eru nú mikið rædd meðal brúðuleik-
hússfólks víða um heim.
Salurinn að Fríkirkjuvegi hefur
tekið miklum stakkaskiptum eftir að
Æskulýðsráð lét gera við hann á
sfðastliðnu sumri.
Þættirnir sem sýndir verða í vetur
eru samdir í Leikbrúðulandi. Til þess
að búa til brúðuleiksýningu þarf
fyrst að matreiða efnið, í þessu til-
felli íslenskar þjóðsögur, þannig að
þær henti þessum miðli, brúðuleik-
húsi. Síðan eru leikararnir mótaðir,
smíðaðir og saumaðir, leiktjöld
hönnuð og smíðuð, leikstjóri kall-
aður til og raddir teknar upp í sam-
ræmi við hreyfingar brúðanna og má
þar ekki skeika sekúndu.
Félagar í Leikbrúðulandi eru:
Bryndís Gunnarsdóttir, Erna Guð-
marsdóttir, Hallveig Thorlacíus og
Helga Steffensen. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er Þórhallur Sigurðsson
leikari.
Sýningar hjá Leikbrúðulandi í vet-
ur eru klukkan 3 á sunnudögum.
LEIÐRÉTTING.
I októberblaöinu féll niöur nafn höf-
undar sögunnar „Tveir vinir“, en
hann er Siggeir Ólafsson. Biður
blaðið hann afsökunar á þessum
mistökum.
36