Æskan - 01.01.1983, Síða 40
Tröllkerlingin og börnin
1. Það var einu sinni fátækur maður, sem
átti tvö börn, strák og stelpu. - Það var
lítið um mat hjá þeim, svo að eitt sinn,
þegar maðurinn fór út í skóg til þess að
safna brenni í eldinn, fóru börnin með til
þess að tína ber og sveppi. -
2. Börnin voru svo önnum kafin við að
tína, að þau tóku varla eftir því, að stór og
neflöng kerling kom til þeirra. „Verið ekki
hrædd,“ sagði hún. „Komið þið heim með
mér og ég skal gefa ykkur nógar sæta-
brauðskökur." -
3. „Já, það viljum við gjarnan," sagði telp-
an, „því að við höfum engan mat fengið í
dag. - Pabbi er svo fátækur og mamma
okkar er dáin.“ „Vesalingarnir," sagði kon-
an. „Ég á heima hérna rétt hjá, komið bara
með mér.“ -
4. Kerlingin fylgdi þeim svo inn í búrið sitt,
þar sem allt var yfirfullt af góðum mat. Hún
bað strákinn að fara ofan í stóru búrkist-
una og ná í nokkrar kökur. „Ég er svo
slæm í bakinu," sagði hún. -
5. Jú, strákur var til með að fara ofan í
kistuna til að sækja sætabrauðið, en þegar
hann var kominn þangað, var kerlingin fljót
að skella lokinu á kistunni í lás og svo hló
hún að öllu saman. - „Þarna skaltu dúsa
drengur minn, þar til þú ert orðinn nógu
feitur til þess að hafa þig saman við súp-
una í pottinum, ha! ha!“ -
6. Kerling lét telpuna bera inn vatn og við í
eldinn. Sú litla var nú ósköp mögur og
ræfilsleg, greyið að tarna. „Ég hef nú lengi
óskað mér vinnukonu," sagði kerla og
hristist af hlátri. -
GLERÁRSKÓLI 10 ÁRA
í október s. I. voru 10 ár liðin frá því flutt var í fyrstu
álmu hins nýja Glerárskóla. Af því tilefni gekkst for-
eldrafélag skólans fyrir mikilli afmælisveislu þann dag
fyrir alla nemendur skólans, foreldra þeirra og gesti.
Kennsla féll niður allan daginn. í skólanum voru sýndar
myndir úr sögu skólans, leiktækja- og spilastofa var
opin, sýndar voru kvikmyndir, spilað bingó og dansað.
40