Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1986, Side 5

Æskan - 01.06.1986, Side 5
5 Þær eru margar brýrnar sem liggja yfir gjána í Lúxemborg því sem hér tíðkast voru þeir inni í verslunum og bönkum og biðu þolin- móðir eftir eigendum sínum. Að lokinni bæjarferð fórum við heim með strætisvagni en við höfðum skilið bílinn eftir við hótelið. Þessi strætisvagn var svolítið sérstakur því hann var eins og harmoníka í miðjunni og átti auðvelt með að taka beygjur á þessum þröngum götu. Um kvöldið borðuðum við á glæsilegum veitinga- stað á jarðhæð hótelsins. Síðan fórum við upp á herbergi, þreyttar eftir langan og viðburðaríkan dag. Þegar þangað kom kveiktum við á sjónvarp- inu, svona rétt til að sjá hvernig sjón- varpið í Lúxemborg væri. Þá kom í ljós að hægt er að ná 20 sjónvarpsrás- um. Það var því erfitt að velja rás til að horfa á og ennþá erfiðara að fara að sofa. Við liðum þó loks inn í drauma- landið og sváfum ákaflega vel þessa fyrstu nótt okkar í Lúxemborg. Framhald í næsta blaði. Gamalt hlaðið virki, með miðstöð Evrópuráðs- ins ( baksvn ^mborgar meðan á dvöl stæði. Frá bílaleigunni héldum við síðan til hótelsins. Það heitir Aerogolf Sheraton, glæsilegt hótel við hliðina á flugvellinum. Eftir að hafa komið okkur fyrir þar fórum við niður í bæ, skoðuðum okkur um og versluðum. í Lúxemborg þótti okkur gott að versla, þar er töluvert ódýrara en hér heima og afgreiðslufólkið lið- legt. Við vorum þó undrandi yfir að ekki skyldu fleiri tala ensku. Það kom þó ekki að sök og okkur tókst ágæt- lega að gera okkur skiljanlegar. Lúxemborg er sérlega falleg borg. Á þessum tíma var allt í blóma og sumar- ið svo sannarlega komið. Við sáum þar ýmsa blómstrandi runna og tré sem ekki eru til hér heima á íslandi. Það er líka svo sérstakt hvernig nýi og gamli tíminn mætast í Lúxemborg. í elsta hluta borgarinnar eru göturnar svo mjóar að þar er með naumindum hægt að keyra. Göturnar eru hlaðnar og fallegu gömlu húsin slúta yfir þær. Á móti voru síðan nýbyggingar úr gleri og stáli þar sem alþjóðleg samtök höfðu aðstöðu. Okkur fannst gaman að sjá alla fallegu hundana, þeir voru af öllum stærðum og gerðum, og ólíkt

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.