Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1986, Qupperneq 8

Æskan - 01.06.1986, Qupperneq 8
Sigurður Helgason 9 Safn til minmngar un Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að öll íslensk börn þekki sögurnar um Hans klaufa, Eldfærin, Litlu stúlkuna með eldspíturnar og Nýju fötin keisar- ans. En vita þau hver samdi þessar sögur? Sá maður hefur stundum verið kallaður „Ævintýraskáldið góða“ en hann hét H.C. Andersen og var danskur. H.C. Andersen, eða Hans Christian Andersen, fæddist í Óðinsvéum eins og fyrr segir. Ekki er nákvæmlega vit- að hvar í borginni skáldið fæddist en menn hafa leitt að því líkur að það hafi verið á heimili ömmu hans þar í borg. Danir halda minningu H.C. Ander- sens hátt á loft og í Óðinsvéum er safn til minningar um þetta stórkostlega skáld; einn þeirra manna sem vakið hafa athygli á Danmörku. Yfirvöld í Óðinsvéum gerðu sér ljóst hversu merkur hann var og árið 1867 var hann kjörinn heiðursborgari í Óðinsvéum. Þegar hundrað ár voru liðin frá fæð- ingu hans var þar stofnað safn til minn- ingar um hann. Þar getur að líta ýmis- legt til minningar um manninn og lista- verkin sem hann skóp og urðu ódauð- leg. Að fara í heimsókn í þetta gamla hús er eins og að hoppa rúmlega eina öld aftur í tímann. Þar eru myndir og munir sem lýsa ævi og störfum H.C. Andersens. Én hvað er þar að sjá? í fyrsta lagi eru þarna húsgögn frá dögum H.C. Andersens, sem talin eru svipuð húsgögnum á heimili skáldsins, en það bjó lengst af ævi sinnar í Kaup- mannahöfn. Þarna eru einnig nokkrir persónulegir munir úr eigu hans og má þar meðal annars nefna nálapúða sem hann saumaði á barnsaldri og gaf konu sem búsett var í námunda við bernskuheimili hans. En vel á minnst — bernskuheimili. Safnið er ekki þar sem skáldið bjó á bernskualdri. í því húsi er hins vegar eins konar útibú frá safninu sem dreg- ur að marga góða gesti sem heimsækja Minningarsafni um H.C. Andersen var valinn staður í þessu húsi í Óðinsvéum 1905. Síðar var byggt stórt safnhús. mu m TM ■ Óðinsvé. Það er í Munkamyllustræti númer þrjú, þar sem faðir hans rak skósmíðaverkstæði meðan honum ent- ist aldur. Bernskuheimilið er skammt frá sjálfu minningarsafninu, þannig að hægðarleikur er að ganga þar á milli. En áfram um minningasafnið. Þar getur að líta margt sem minnir á skáldið H.C. Andersen. Má þar meðal annars nefna upprunaleg handrit a nokkrum verkum hans, þar á me Nýju fötum keisarans. Börn sem heirn sækja húsið geta í sérstökum tækjul11 hlustað á snjalla leikara lesa ævintýdm Þau sitja við þægileg borð og hlusta ^ upplesturinn svipað og hlustað er það sem talað er við fólk í síma Sögur H.C. Andersen hafa ve rið 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.