Æskan - 01.06.1986, Qupperneq 42
VEISTU
„Veiðum stóra
þorska í höfninni‘
hvar Þorlákshöfn er á landinu? Sjálf-
sagt hafa mörg ykkar heyrt kauptúns-
ins getið í fjölmiðlum en ekki hugsað
mikið um hvar það er á landinu. Fyrir
þá sem ekki eru alveg vissir skulum við
reyna að bæta lítillega úr.
Þorlákshöfn er á svonefndu Hafn-
arnesi vestan ósa Ölfusár í Árnessýslu.
Það tekur rúmlega 35 mínútur að aka
þangað úr Reykjavík. íbúarnir vinna
flestir við sjávarútveg. Staðurinn hef-
ur byggst mjög hratt upp síðustu þrjá
áratugi. Árið 1950 voru skráðir þar
aðeins 4 karlmenn og ein kona. 1960
voru íbúarnir orðnir 150 en svo fjölg-
aði þeim mjög ört næstu árin og núna
eru þeir rúmlega 1100. Næstu þéttbýli
við Þorlákshöfn eru Hveragerði og
Selfoss.
Kirkja heilags Þorláks biskups stóð í
Þorlákshöfn að kaþólskum sið og eftir
honum ber staðurinn nafn sitt. Munn-
mæli segja að bóndi nokkur sem átti
jörðina og áður hét Elliðahöfn hafi
komist í hann krappan á skipi sínu og
þá heitið á Þorlák biskup að skíra stað-
inn eftir honum ef hann og áhöfn hans
næðu heilu og höldnu í land. Það tókst
og hann stóð við heit sitt.
Blaðamaður Æskunnar lagði nýlega
land undir fót og fór til Þorlákshafnar
til að ræða við ungu kynslóðina þar.
Afrakstur þeirrar ferðar sjáið þið hér
á opnunni. í næsta blaði birtum við
svo viðtöl sem við tókum á Selfossi..
Þeir Brynjar Einarsson og Magnús
Ragnar Magnússon voru báðir á leið á
fótboltaæfingu þegar við rákumst á þá.
Þeir eru 11 ára og leika með 5. flokki
Þórs en svo nefnist knattspyrnuliðið í
Þorlákshöfn. Brynjar er aðalmark-
vörður en Magnús varamarkvörður.
„Okkur hefur gengið illa í fótbolta-
leikjum í sumar,“ sögðu þeir hryggir á
svip þegar við spurðum um þau mál.
„Við höfum tapað nokkrum leikum,
m.a. gegn Hveragerði og Selfoss.“
— Kunnið þið einhverja skýringu á
þessu?
„Já, við höfum ekki eins gott úrval
og hinir. Margir félagar okkar eru í
sveit og það munar mikið um suú1
þeirra. Nei, við vildum ekki fara
sveit, við fórum frekar í unglingav*nn
una. Hún var í júní.“
- Hvað voruð þið látnir gera?
„Við sópuðum götur, tíndum rusl0
margt fleira. Þetta var skemmti e&
vinna og við fengum 4000 kr. íyrlf
mánuðinn. Við gátum keypt
íþróttabúning, takkaskó og annað se
vantaði.“
— Farið þið með mikla pening*1
sjoppuna?
Þeir grettu sig, fullir efasem a
„Nei, ekki meira en aðrir.“ , ^
Strákarnir fræddu okkur á þvl
þeir færu oft niður á höfn að ^°r^n
Þeir hafa veitt bæði ufsa og þorsk. ”
þeir eru ekki ætir. Það er út af sl°rl „
og klóakinu sem berst frá bátunm11-
sögðu þeir. -
„Við höfum veitt stóra þorS
bætti Brynjar við og breiddi út fa^.g
inn til að sýna okkur stærð þeirra- .
kinkuðum kolli þótt við tryðum P.^
tæplega að aflinn væri svona m*
fenglegur. n3
Að síðustu spurðum við stra -r
hvað þeir ætluðu að taka sér y
hendur í framtíðinni. v
„Við ætlum báðir að verða heS ,j
menn,“ sögðu þeir - en ekki fy ^
sögunni hvort þeir ætluðu sér að u
því.
Þessa þrjá pilta hittum við á förnum vegi í Þorlákshöfn og þeir voru sko alveg til í að fá
mynd af sér í Æskuna! Þeir heita Kristján Andrésson, Sigurbjörn Ingvi Þórðarsson og
Hans Wium Magnússon. Kristján er 9 ára en félagar hans 10 ára. Þeir síðarnefndu hafa
mestan áhuga á fótbolta en Kristján hefur lítinn áhuga á honum og þykir skemmtilegast
að hjóla
42