Æskan - 01.06.1986, Blaðsíða 43
Hvemig er aö eiga heima í Þorlákshöfn?
^uðjón Guðjónsson 9 ára:
Mér líkar það vel. Ég hef átt hér
heima frá því ég fæddist. í sumar hef
e§ verið á leikjanámskeiðum. Það hef-
Ur verið gaman. Við förum í íþróttir og
aUs konar leiki. Ég æfi líka með 6.
^°kki í knattspyrnu. Þar leik ég stöðu
uakvarðar. Við höfum keppt nokkra
eiki og það hefur gengið misjafnlega.
^ristín Hafsteinsdóttir 13 ára:
.8 átti heima í Kópavogi fyrstu
J^uði ævinnar en flutti svo hingað.
etta er alveg ágætur staður og alltaf
§ við að vera. Ég fékk vinnu í humri
v^r 1 sumar og hafði ágætt kaup. Ætli
köfum ekki verið með 73 krónur á
IT|ann, mig minnir það. Vinnudagur-
Var 8 tímar en fór stundum upp í 10
, a- Humarvinnan er dálítið erfið og
spennandi til lengdar. í tóm-
ndum hittir maður vinkonur sínar
ly v'ð förum oft í sund. Við komum
l|.! uálægt öðrum íþróttum. Það er
« 1 ,Um sæta stráka hérna. Þeir eru
fótb*r ^a^ær*s^e8rr °8 v’lja bara vera 1
Jón Þór Árnason 6 ára:
Mér finnst líka ágætt að búa hérna. í
sumar hef ég verið á leikjanámskeiði
og einnig æft knattspyrnu. Svo leik ég
mér við félaga mína. Næsta vetur fer
ég í 7 ára bekk og ég hlakka til. Ég er
byrjaður að læra að stafa.
Anna Lísa Sandholt 13 ára:
Ég hef bara átt heima hér í nokkra
mánuði og kunnað mjög vel við mig.
Ég átti áður heima á Selfossi en hér er
betra að vera og skemmtilegri krakk-
ar. Fyrr í sumar fékk ég vinnu í Glett-
ingi við humar og vann þar í nokkrar
vikur. Kaupið var ágætt, 3-4000 krón-
ur á viku. Þetta var dálítið sóðaleg og
stundum leiðinleg vinna en maður lét
sig hafa það þennan stutta tíma. Fyrir
peningana keypti ég mér úlpu en lét
svo afganginn inn á bankabók. Ég er
nefnilega að safna mér fyrir utanlands-
ferð. Nei, hér eru fáir sætir strákar en
ekki eru þeir betri á Selfossi. Aðal-
áhugamál mín eru límmiðar og bréfa-
skipti.
Ragnar Friðrik Franklínsson 9
ára:
Ég fæddist í Reykjavík en hef átt
heima hér alla tíð. Ég starfa við að
bera út Morgunblaðið og DV, hvort í
sínu lagi. Ég fæ gott kaup og legg það
inn á bankabók. Ég á núna 50 þúsund
krónur inni á henni. Nei, ég er ekki að
safna fyrir neinu sérstöku. I sumar æfi
ég með B-liði 6. flokks í knattspyrnu.
Við kepptum síðast á móti Selfossi og
þeir unnu okkur 7-1. Ég gerði eina
markið okkar en það hafði víst lítið að
segja.
Fríða Björk Sandholt 8 ára:
Ég er systir Önnu Lísu og mér þykir
líka skemmtilegra að búa hérna en á
Selfossi. Ég á margar vinkonur og við
leikum okkur mikið saman, hjólum og
svoleiðis. Mér þykir mjög gaman að
hjóla. Núna er ég í vist og gæti bróður
míns. Það er alveg ágætt því að hann
er þægur. Ég fæ 1000 krónur í kaup á
mánuði og er ánægð með það.
43