Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1986, Page 44

Æskan - 01.06.1986, Page 44
Opin vika ‘86 á Blönduósi Dagana 12.-16. maí í vor var haldin vinnuvika í grunnskólanum á Blöndu- ósi. Þátttakendur voru á aldrinum 6-14 ára en nemendur tveggja efstu bekkja skólans höfðu öðrum hnöppum að hneppa þar sem 9. bekkur var í skóla- ferðalagi en nemendur 8. bekkjar í starfskynningu. Vikuna áður var skipt í hópa og var reynt að hafa þá eins þvert á alla bekkjaskiptingu og unnt var. Ekki virtist það þó hafa áhrif á vinnugleði nemenda því að allir unnu eins og berserkir til að geta komið sem bestu efni frá sér á sem stystum tíma. Skipt var í hópa, svo sem teiknihóp, fj ölmiðlahóp, hljóðfærasmíðahóp, leiklistarhóp og skúlptúrhóp. Mánudaginn 12. maí komu allir kl. 10 í skólann og fóru nemendur fjög- urra hópa í vettvangsferð út í Kálfs- hamarsvík á Skaga til að safna efni fyrir vikuna. Hljóðfærasmiðir og skúlptúrlistamenn leituðu að sérkenni- legum hlutum sem hafði rekið á fjörur, teiknarar leituðu að fyrir- myndum að listaverkum og blaða- menn fylgdu eftir og tóku viðtöl (með misjöfnum árangri). Á þriðjudegi, miðvikudegi og fimmtudegi var unnið af fullum krafti við að fullgera verkefnin fyrir sýning- una á föstudeginum. Á kennarafundi á mánudegi kom fram sú hugmynd að nemendur gætu komið í tauþrykksstofuna og teiknað fjöregg á hvíta boli. Þetta fjöregg mundi jafnframt verða verndargripur sýningarinnar. Þessari hugmynd var svo vel tekið af nemendum að allir hvítir bolir seldust upp í verslunum og fjöreggin voru farin að sjást á bláum, röndóttum og jafnvel svörtum bolum. Loks rann föstudagurinn upp. Sól skein í heiði en svalur vindur blés af hafi. Klukkan hálffjögur lagði skrúð- ganga af stað frá skólanum og marser- Skrúögangan kemur aö hótelinu. Fjöreggiö borið í fararbroddi (Ljósm.: Jón Sigurðsson) aði um íbúðarhverfi bæjarins. Á með- an var spilað undir á hljóðfæri úr raf- magns- og hitaveiturörum, gömlum þvottabölum, leikfangatraktorum og fleiru. Fyrir göngunni fór formaður leiklistarhóps á hestbaki en á eftir hon- um kom gríðarmikið fjöregg úr plasti og báru það tveir nemendur. Auk þess gat að líta heilan skóg af fánum sem nemendur tauþrykkshóps höfðu gert og nemendur sungu hástöfum sönginn um fjöreggið fríða, en hann hljó^ar svo: Glöð á góðum degi göngum eftir vegi. Fjöreggið fríða ferðast má víða. Fagnandi vorið nú fer í hönd. Skrúðgangan endaði svo inn' a hóteli þar sem leiklistarhópurinn va FJÖREGGIÐ FRÍÐA 44 Nokkur listaverkanna (Ljósm.: U.A)

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.