Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 13

Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 13
Þegar við tókum við kyndlinum hvert á eftir öðru fór um okkur sérstök tilfinning — geðhrif sem ekki er auðvelt að lýsa. Við hófum hann á loft, hlupum nokkurn spöl, afhentum hann svo aftur þeldökkum manni, einum forvígismanna hlaupsins, hlupum áfram í þéttum hópi: Nokkrir þátttakendur af hundruðum þúsunda í Heimshlaupi til friðar. Heimshlaup tihiðar DV-mynd: Kristján Ari Eflaust finnst okkur öllum oft aö framlag okkar skipti litlu máli. Að einu gildi hvort viö leggjum eitthvaö fram, þar muni svo lítið um. Jafnframt vitum við vel að ekkert gerist ef allir hugsa á þann veg. Þegar ég heyrði um friðar- hlaupið rifjaðist upp fyrir mér að ég tók þátt í ritgerðasamkeppni um friðarmál fyrir 20 árum. Þá sagði ég eitthvað á þá leið að friður yrði ekki tryggður nema fólk um allan heim léti friðarlöngun sína opinskátt og áberandi í ljós. Þrá eftir að lifa við frið og öryggi byggi með hverjum manni. Hana ætti ekki að byrgja inni heldur bera á torg, deila með öðrum. Samtök þyrfti að mynda í hverju landi, koma á sambandi þeirra um allan heim. Þetta var æskuhugsjón. í amstri dag- legs lífs dofnaði hún, sofnaði þó aldr^ alveg. Þess vegna fannst mér ég yrði a reima á mig skóna og hlaupa með- Kveða niður þá hugsun að það tæki þ’j1 ekki að blandast í hópinn, nógir aðnf yrðu til að hlaupa nokkurn spöl undh friðarkyndli. Halda aftur af óljósun’ ótta við að svo fáir létu sjá sig að þetta yrði allt saman kjánalegt. „Við leggjum áherslu á að friðurin11 þurfi fyrst og fremst að byrja með ein' staklingnum. Til að fá heimsfrið þurf' um við öll að leggja okkar af rnörkum- var haft eftir þeim sem skipulögðu hlaupið. Það var ekkert undanfæri. E? hlaut að hlaupa þó að ég tvístigi fram3 síðustu stundu. ■ áh'till hópur fólks á öllum aldri $adi safnast saman við Höfða. For- $t>sráðherra flutti ávarp og hljóp síð- gn n°kkur skref með kyndilinn. Stjórn- ndur hlaupsins tóku við og nokkru s' ar Jón Páll. Hópurinn þynntist ’Jtám saman. Þegar við fórum yfir L y^ubraut vorum við aðeins tíu eftir, r>r forvígismenn Heimshlaupsins, sex ng>r krakkar og sá er þetta skrifar. 10 hlupum gegnum Kópavog og í u arbabæ. Þar skildu leiðir. Stjórnend- 01 þótti leiðin orðin nógu löng fyrir , rakkana og ég ákvað að fara með Þenn,.íbæinn" Mér þótti tilvalið að spjalla aðeins L Þá Og við mæltum okkur mót á _ augardalsvelli er úrslitakeppni 'Prótt: anámskeiðanna færi þar fram. Hlaupagikkir Það voru þrír drengir og þrjár telpur sem lengst fóru í upphafi friðarhlaups- ins á íslandi. Þau heita: Anna og Ester Ottesen, Sæviðarsundi 10, Hrund Þór- hallsdóttir, Melgerði 10, Birgir Er- lendsson, Þrastarhólum 6, Kristján Símonarson, Þrastarhólum 10 og Óli Ómarsson, Möðrufelli 15 — öll í Reykjavík. Þau reyndust áhugasöm um íþróttir og höfðu tekið þátt í friðar- hlaupinu eftir ábendingu leiðbeinenda á íþróttanámskeiðum. Friðarmálefnið hafði því ekki ráðið þátttöku þeirra en þau sögðust öll hugsa dálítið um það og hafa beyg af heimsátökum og notkun kjarnorku- vopna í styrjöld. Þau sögðust líka hafa orðið fyrir miklum áhrifum af því að hlaupa með friðarkyndilinn. Þau hefðu tengst málefninu nánar fyrir bragðið. Stelpurnar höfðu allar tekið þátt í Ólympíuhlaupinu og Landsbanka- hlaupinu, systurnar í fyrra, Hrund á þessu ári. Ester og Hrund eru 11 ára en Anna 13. Þær hafa áhuga á að stunda frjálsar íþróttir en Ester hefur æft hnit (badminton), Anna og Hrund hand- knattleik. Strákarnir eru 12 ára, Birgir og Óli verða þó 13 á árinu. Birgir hefur tekið þátt í Landsbankahlaupinu, Ólympíu- hlaupinu , Afríkuhlaupinu og skemmtiskokki Maraþonhlaupsins í fyrra. Kristján hefur tekið þátt í því sama nema Landsbankahlaupinu. Skemmtiskokkið var 7 km en þeir stefna að því að hlaupa hálft Maraþon í haust — 21 km. Það hyggst Óli líka gera en hann var með í Friðarhlaupinu 1986. Hlaup hafa þeir æft lítillega á eigin veg- um. Birgir og Kristján hyggjast þó fara að æfa með ÍR; Óli segist láta sér nægja að skokka með mömmu sinni. Óli og Birgir leika knattspyrnu með 4. flokki Leiknis og Birgir er auk þess í skíða- deild Ármanns. Þau hafa því auðsjáanlega nóg fyrir stafni. Við óskum þeim velgengni í íþróttum — hollu og þroskandi tóm- stundagamni. Þó að sá hópur væri ekki stór sem hljóp úr Reykjavík um Kópavog og áfram varð þátttakan í Heimshlaupi til friðar góð hér á landi og víða almenn. Kyndillinn var borinn um þrjú þúsund kílómetra sem samsvarar því að hring- vegurinn væri farinn tvisvar sinnum. Hann hafði verið tendraður við frelsis- styttuna í Nýju Jórvík (New York) og síðan lá leið hans um Japan í höndum þarlendra friðarsinna. Alls var hlaupið um 55 lönd á 102 dögum — með nokkra kyndla. Ég þykist þess viss að fólk í öllum löndum muni á næstu árum halda frið- arkyndlum á loft, beint og óbeint. Við skulum leggja okkar af mörkum. Þá er von. Ester, Óli, Hrund, Kristján, Anna og Birgir. 12 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.