Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 30
fftjfi/W0Lbi$9&W
Saga þessi er samin af
nemendum 7. og 8. bekkjar
Húsabakkaskóla í mars og apríl
1987. Islenskukennari þeirra
skrifaði fyrstu málsgreinarnar,
en síðan tóku nemendurnir við
hver af öðrum. Rœtt var um
framgang sögunnar í
kennslustundum jafnóðum og
hún var skrifuð. Leitað var eftir
hugmyndum um það hvers
vegna atburðir hefðu gerst og
hvernig best vœri að halda
sögunni áfram. Ef höfundar
hlupu út undan sér og kaflar
þeirra voru of ótrúlegir eða úr
samhengi kom fyrir að þeir
þurftu að skrifa nýjan kafla.
Kennari vélritaði handritin
jafnóðum, leiðrétti smávegis
þegar framhald stangaðist á við
það sem á undan var gengið,
lagfœrði málfar og stíl hér og
þar, en vék ekki frá
hugmyndum höfundanna.
I. KAFLI
Börkur Árnason skráöi:
Aðfaranótt síðasta laugardags um
kl. þrjú vaknaði ég við hræðilegt
öskur. Það var svo skerandi og tryll-
ingslegt að hárin risu í hnakkanum á
mér og gæsahúð spratt fram um allan
skrokkinn. Ég reis skjálfandi á f®1
ur, klæddi mig í buxur og peysU’
fann gamla kínaskó úti í horn>'
smeygði mér í þá og gekk út.
Úti var napur vindur, kuldi
rigning. Ég gekk um á rennblautI'
stéttinni og hoppaði svolítið til a ,
halda á mér hita. Síðan gekk ég ut u
lóðina. Þar sukku skórnir í leðju
blotnuðu í gegn. Ég skimaði mn
30