Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 27
VINIR MÍNIR
66
Rætt við 8 ára fatlaða stúlku
hefur lesið heitir Hildur og æv-
týri hennar. Henni þykir líka gaman
d0 Gilitrutt.
I ”Eg horfi líka mikið á sjónvarp, aðal-
^ega ríkissjónvarpið,'1 heldur Ólöf Inga
am. „Töfraglugginn og barnatíminn
, 0 skemmtilegastir. Töfraglugginn
ur þó vinninginn.“
Hvaða áhugamál áttu önnur en þau
Sem þú hefur nefnt?
fylgist vel með íþróttum, eink-
01 glímu og hlaupum. Svo fer ég
Undum á völlinn með pabba mínum
^ að hvetja KR-inga áfram. Einnig
rum við oft saman í Neslaugina. Það
J gott fyrir fatlaða að vera þar.“
r.Attu þér eftirlætishljómsveit?
a’ Evrópu (Europe).“
— Áttu einhver dýr?
„Nei, ekki núna. Einu sinni átti ég
hund. Það var fyrir nokkrum árum.
Hann var sendur í sveitina því að hann
hrinti blómapottunum um koll heima
og skemmdi teppin með því að klóra í
þau. Hann hét Kobbi.“
„Finn að ég er
aldrei ein“
Ólöf Inga hefur þrisvar sinnum ferð-
ast með foreldrum sínum til útlanda,
tvisvar til Danmerkur og einu sinni til
Englands. í London sá hún vaxmynd af
Mjallhvíti og þótti mikið til hennar
koma.
Við Ólöf tölum aftur um fötlun
hennar.
„Mér finnst erfiðast að vera fötluð
þegar krakkarnir eru í eltingarleik og
hlaupa burtu frá mér,“ segir hún. „Ég
get tekið þátt í leiknum en þykir verst
að komast ekki upp stiga eins og þau.
Það væri svo miklu skemmtilegra að
vera með þeim ef ég kæmist upp stig-
ana.“
„Já, það kemur stundum fyrir þegar
krakkarnir eru í einhverri fýlu. Nei, ég
tek það ekkert nærri mér. Flestir eru
góðir við mig.“
Næsta sumar ætlar Ólöf Inga að selja
DV hjá SS búðinni í Austurveri. Hún
er búin að fá vilyrði fyrir því. Hún
hlakkar til þess að hefja starfið. Þór-
unn, frænka hennar, sem er líka í hjóla-
stól, selur 10 blöð á dag.
En hvað langar Ólöfu Ingu til að
verða í framtíðinni?
„Mig langar að verða hjúkrunar-
fræðingur eða lögfræðingur," svarar
hún um hæl. „Ég held að það séu
spennandi störf.“
Hún segist trúa á Guð. Hún biður oft
bænirnar og fer stundum með foreldr-
um sínum til kirkju.
„Ég finn oft til nálægðar Guðs,“
heldur Ólöf Inga áfram. „Ég veit að ég
er aldrei ein. Það er gott að finna
hvernig hann styður mann í lífinu."
Við þökkum Ólöfu fyrir viðtalið. Það
er alltaf gaman að ræða við glaðlynda
og bjartsýna krakka.
-E.I
Er þér stundum strítt á fötlun
Margrét, Guðrún Unnur, Ólöf Inga og Þórunn.
27