Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 41
gera mitt besta
•*- isiiMioa
HCFfftft
STEINGRIMSSON
■■ RUMANIA
gabriel
SCHWARTZMAN
•asta skákin sem ég tefldi var við 11 ára dreng frá Rúmeníu.
er atvinnuskákmaður og gerir ekkert annað en tefla og læra tungumál
-|'*e§Ur straumur um mig þegar ég
|j . UPP frá síðustu skákinni og vissi að
u 'msnieistaratitillinn var í höfn,“ segir
ePinn af hógværð.
l uk þess að vera heimsmeistari er
ainn Norðurlandameistari 1987 í sama
^ Ursflokki. Þessi mót eru ekki þau
h rstu sem hann keppir á. Áður hefur
nn teflt á mótum í Noregi, Svíþjóð,
b^H^orku 0g Bandaríkjunum. Hann
Ur farið víða þó að hann sé mjög
Ungur.
hu
skyldi Héðinn vera farinn að
§Sa til stórmeistaratitils síðar meir?
’ lniinn verður að leiða það í ljós,‘
svarar hann af sömu hógværðinni og
fyrr.
— Ertu tapsár?
„Auðvitað verð ég dálítið svekktur
þegar ég glutra niður unnu tafli. En ég
er fljótur að jafna mig. Maður verður
að kunna að taka bæði sigri og ósigri í
tafli. “
Héðinn stundaði nám í Hvassaleitis-
skóla s.l. vetur en fer í Réttarholtsskóla
í haust. Úr Hvassaleitinu hafa komið
fleiri ágætir skákmenn, svo sem Þröst-
ur Þórhallsson, Tómas Björnsson og
Snorri Bergsson.
— Eru fleiri góðir skákmenn í fjöl-
skyldunni?
„Ekki svo að ég viti til. Það er frekar
að ættingjarnir leggi fyrir sig bridds.
Foreldrar mínir og bræður, sem eru
tveir, tefla lítið sem ekkert.“
Héðinn bætir við þetta að fjölskylda
sín hafi hvatt sig mikið og það hafi verið
honum talsverður stuðningur.
— Hefurðu þreytt þig eitthvað á
reyndari skákmönnum?
„Já, lítillega og þá aðallega í fjöl-
tefli. “
— Hefurðu lagt þá að velli?
„Ekki stórmeistarana. Eg gerði jafn-
tefli við Margeir í sumar."
Næsta ár keppir Héðinn á heims-
meistaramóti 12-14 ára. í lok samtalsins
spyr ég hvort hann geri sér vonir um
sigur.
„Það er ómögulegt að sjá það fyrir.
Enginn er fyrirfram öruggur sigurveg-
ari. En maður reynir alltaf að gera sitt
besta.“
Æskan óskar þessum duglega og
hógværa strák góðs gengis á skákbraut-
inni í framtíðinni og ætlar að fylgjast vel
með honum.
-E.I
DV-mynd: Kristján Ari
41