Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 42

Æskan - 01.06.1987, Blaðsíða 42
Nanna átti páfagauk. Fjaðrirn- ar hans voru í öllum regnbogans litum og hann kunni að tísta Nanna. Amma hafði gefið Nönnu páfagaukinn og búrið í af- mælisgjöf en mamma þoldi hann ekki. „Það er ekkert nema óhrein- indi í kringum svona dýr.“ sagði hún við Nönnu. „Þú getur séð um hann sjálf." Og Nanna gerði það. Hún gaf honum matinn og hugsaði um búrið hans og hún kom fyrir litl- um spegli inni í búrinu því að þetta var skrautgjarn páfagaukur og fínn með sig. Hann stóð allan daginn fyrir framan spegilinn og speglaði sig og tísti svo: „Nanna." „Heldur hann að hann heiti Nanna?" spurði Nanna mömmu sína. „Ætli það ekki,“ sagði mamma, „annars hafa þessir fuglar svo lítinn heila að þeir vita hvorki eitt né neitt.'' Nanna hugsaði oft um þetta. Henni fannst þetta allt mjög skrítið. „Er allt verra sem er minna," hugsaði hún. „Er stærsta dýrið á jörðinni þá vitrasta dýrið á jörð- inni? Er mamma vitrari en ég af því að hún er stærri en ég?'' Eri hún þorði ekki að spyrja mömmu að þessu. Hún hélt að hún myndi hlæja. Þessar hugsanir flögruðu um uu£ Nönnu þessa andvökunótt, a*Nr í einu eins og urmull af fugl- í öllum regnbogans litum. kyndilega fannst henni sem e'nn af þessum regnbogalitu fugl- uni settist á öxl hennar og hvísl- aði með mjúkri fuglsrödd sem Jktist mest mjóróma blíðri kven- rödd: Nanna, Nanna þú veist Nanna fór að kenna páfa- gauknum að sitja á öxlinni á sér. Hún lét hann sitja á öxlinni á sér langtímum saman og hvíslaði ýmsu að honum. Leyndarmál- um. Augu páfagauksins voru ofurlítil en einkennilega blik- andi. Hann leit aldrei undan þeg- ar hún horfði í augu hans. Hún hafði búrið í sínu herbergi og á nóttunni leyfði hún Páa að sofa utan búrsins en mamma vissi ekkert um það. Eina nóttina um vorið gekk Nönnu illa aðfesta svefn. Daginn var að lengja og þrestirnir kvök- uðu án afláts í greinum trjánna fyrir utan gluggann hennar. Nanna starði út í bláa vornóttina og hlustaði á fuglasönginn. Ó, ef hún skildi nú aðeins fuglamál. Skyldu fuglarnir ekki vita um mörg leyndarmál því að þeir sátu fyrir utan alla gluggana í götunni . . , „.,9 1jm jafnt nott sem dag og sungu • hvað voru þeir að syngja? Sög ^ þeir kannski sögur og ljnö - mannfólkinu sem átti heiri>a þessum stóru búrum sem ne/n‘ ■. hús? Hlógu þeir ekki að þvl y - alla þá vitleysu sem leynu15^ stóru heilunum þeirra? Og allS , Nönnu flögruðu um herberg10 leit að Páa. Sat hann þá ekki þarna un ^ glugganum. litskrúðugri nokkru sinni fyrr og horfð1. Þráði hann kannski frelsl^ ~ vorblámann eins og aðrir 7aa Nægði honum ekki að /’U-Ó nokkurn veginn frjáls um huS' Var það sjálfur himingeimn1'1 sem hann þráði? Eða þráði ha eitthvað annað? Var h°nU r kannski ekki nóg að vera vlU Nönnu, sitja á öxl hennar r kunna að segja Nanna? þú veist að ég á heima í bláa skóginum sem vex uppi í skýjunum þar á ég hreiður úr sólargeislum rauðum eins og laufin á haustin eins og flauelskjóllinn þinn fíni sem þú fermist í Ó Nanna þar bíður mín fugl sem liggur á eggi úr mánaskini Og Nanna horfði í augu Páa, *vo blá, svo djúp þó að þau væru ara lítil fuglsaugu. Svo djúp eins °§ himingeimurinn. Svo vitur. Hún hrökk upp. Hafði hún þá s°fið? Það var orðið rökkvað í herberginu. Hvar var Pái? Hann var enn í gluggakistunni. Senni- lega sofandi. Nanna læddist fram úr rúminu, nær glugganum. Fuglasöngurinn var þagnaður. Loksins. Úti var dimmur blámi. And- spænis Páa, á trjágrein sem lá upp að glugganum, svaf undur- fagur fugl með nefið undir væng. Þarna í vornóttinni virtist hann blár. Nanna starði á hann. Hann var einn í trénu. Með nefið sitt undir væng. Hvernig skyldi það vera? Kannski gyllt. Eins og sól- in. Kannski rautt eins og blóð- dropi. Eins og lauf trésins á haustin. Nanna hristi sig. Hún var greinilega orðin eitthvað skrítin. Úr því að hún var farin að skilja fuglamál. „Fólk verður ruglað á að sofa ekki,“ sagði mamma oft, „þess vegna verða börn að fara snemma í rúmið.“ Nanna gekk að glugganum sem í leiðslu og lokaði honum. Síðan fór hún upp í rúmið. Hún svaf í einum dúr fram á morgun þangað til mamma kom inn til hennar og vakti hana. „Þó að það sé sunnudagur máttu ekki sofa allan daginn,“ sagði mamma og hristi Nönnu mjúklega. Nanna stökk fram úr. Ein- hvern veginn fannst henni eitt- hvað vera öðruvísi en venjulega. Hún fór út að glugganum og lit- aðist um herbergið. Sólin skein inn um gluggann. „Það er fínt veður í dag,“ sagði mamma. Glugginn var opinn í hálfa gátt og ferskt vorloftið streymdi um herbergið. Nanna starði til skipt- is á gluggann og búrið hans Páa. Það var enginn vafi. Pái var far- inn. Litli regnbogalitaði páfa- gaukurinn hennar, sem kunni að segja Nanna, var farinn. Út um opinn gluggann. Hafði hún þá ekki lokað honum í nótt? Hafði hún kannski opnað hann? Hvað hafði gerst? Fuglinn, sem hafði sofið fyrir utan um nóttina, var líka horfinn. „Þú hefur hleypt Páa út í nótt,“ sagði mamma og var ekki laust við að í röddinni gætti léttis. „Jæja, fegin er ég. Það er bara að greyið drepist ekki í haust.“ En Nanna sagði ekki orð. Hún bara horfði út um gluggann. Hún ein vissi að nú var Pái kominn í frumskóginn bláa sem vex uppi á skýjunum þar sem allir eru frjáls- ir og laufin eru úr gulli kvöldsól- arinnar og hann myndi aldrei snúa aftur. En kannski kæmi hann til hennar í svefni og segði „Nanna, Nanna“ og hún myndi finna gullið lauf í hendi sinni til sannindamerkis er hún vaknaði. Héðan af ætlaði hún að sofa fyrir opnum glugga. 42 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.