Æskan - 05.10.1987, Side 12
nálgast Hvíta máva á næstu myndbanda-
leigu.“
— Nú er Stuðmannahópurinn stór.
Hvernig er samkomulagið?
„Þegar margir vinna saman tekur auð-
vitað alltaf meiri tíma að samræma hug-
myndir og óskir manna. Það þarf sérkenni-
lega blöndu af „egói“ (sérgæsku), óeigin-
girni og sveigjanleika til að draga í land og
virða hugmyndir annarra. Æskilegt er að
menn geti sætt sig við óskir meirihlutans.
Öðruvísi gengur samstarf ekki.
Það þarf að huga að þúsund atriðum í
starfi okkar. Við höfum, eins og alþjóð veit,
ekki einskorðað okkur við hljómplötuút-
gáfu og dansleikjahald. Á bak við allt starf
okkar liggur gífurleg vinna. Eins og við vit-
um er lítill og erfiður markaður fyrir hljóm-
sveit á íslandi. Eini kosturinn við hann er sá
að hér er tiltölulega auðvelt að verða þekkt-
ur en ókostur er hvað erfitt er að lifa af af-
urðum sínum. Áhugamennskan fleytir ís-
lenskum tónlistarmönnum ekki langt.“
— Þú talar um annríki hjá ykkur Stuð-
mönnum. Ég hef það stundum á tilfinning-
unni að þið séuð miklu frekar fyrirtæki en
hljómsveit. . .
„Við erum auðvitað ekkert annað en fyr-
irtæki. Við höfum endurskoðanda sem sér
um bókhaldið. Við tökum fjárhagslega
áhættu eins og önnur fyrirtæki sem ráðast í
ný verkefni. Sumir virðast halda að við
séum alltaf í partíi — en það er mikill mis-
skilningur."
Gaman að hangsa
Ég beini talinu aftur að Valgeiri sjálfum.
Skyldi maður, sem á annríkt, eiga gott með
að skipuleggja vinnutíma sinn?
„Það er misjafnt og fer kannski mest eftir
því hvað mikið liggur fyrir. Mér þykir einna
best að vinna á morgnana. Mér finnst það
alltaf góð tilfinning um hádegisbil þegar ég
hef komið miklu í verk. Svo þykir mér
reyndar líka gott að vinna á kvöldin.
Ég hef alltaf nóg að starfa en samt finnst
mér ég vera svakalega latur að eðlisfari.
Ætli ég verði ekki að teljast húðarletingi.
Mér þykir oft gaman að hangsa og gera sem
minnst. Þá er ég kannski að glamra á gítar
og því er ekki að neita að stundum hef ég
dottið niður á nýtt lag á þann hátt.“
— Ætlarðu að halda áfram að lifa á tón-
list næstu ár, hafa það sem aðalstarf?
„Ég hef ekki leitt hugann að neinu öðru.
Ef fólk ljær því sem ég er að fást við eyra
ætti það að vera auðvelt."
Valgeir er fjölhæfur tónlistarmaður.
Músfksviðið er breitt. Hann hefur samið
rokk, dægurflugur, vísnatónlist, og tónlist
fyrir sjónvarpsauglýsingar og kvikmyndir.
Um þessar mundir er hann að semja eyrna-
konfekt við leikrit eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur sem frumsýna á í Iðnó um jól-
in.
En gæti Æskan hringt í Valgeir á morgun
og pantað lag við auglýsingu sem sýna á í
Sjónvarpinu eftir þrjár vikur?
„Gjörðu svo vel! Ég skal reyna að gera
mitt besta. Ég hef samið mörg lög um dag-
ana, eiginlega frá því að ég var 10 ára og er
áheyrandans. Það sem hægt er að seg)
einfaldan hátt á ekki að flækja. Einfal
inn getur hins vegar verið erfiður viður -
ar. Hver hlutur þarf að vera á sínum sta
ekkert hægt að fela.“ ta
— Þúerteinnafþeimfáusemallta 6
komið á óvart í viðtölum og forðast
tyggja sömu tugguna. Sumum finnst a F
sért oft að reyna að vera fyndinn en a
kunna vel að meta skop þitt. Líturðu P -
sem húmorista? -{
„Það verða aðrir að dæma um- Mar.
Með Ástu konu sinni, syninum Árna Tómasi
því í nokkuð góðri þjálfun. Því meira sem
ég sem þeim mun auðveldara er það. Svona
geta t.d. reyndir blaðamenn unnið eftir
pöntun."
— Þú kemur vel fyrir bæði í sjónvarpi og
útvarpi og virðist afslappaður. Ertu það í
raun?
„Já. Það hjálpar manni heldur lítið í
fjölmiðlunum að vera stressaður. Ákveðin
spenna getur stundum verið nauðsynleg en
hún má aldrei vera þrúgandi. Við mikla
streitu komast menn í ákveðið ástand sem
getur tekið mikinn tíma að komast út úr.
Alls konar aukaverkanir geta fylgt.“
— Hefurðu eitthvert markmið í huga
þegar þú ert að semja lög?
„Já, ég er alltaf að leita að einfaldleikan-
um. revna að komast stystu leið að hjarta
— og heimiliskettinum
rugla saman hugtökunum húmor og brand
ari og misskilja mann þess vegna oft- Hum
or getur verið langt frá fyndni. Sjálfnm
finnst mér skemmtilegt ef fólk heldur a
grínið sé alvara. Ég vil bæta við þetta að eg
segi aldrei brandara, einfaldlega af ÞV1 a
ég hef einhvern einstæðan hæfileika til 3
gleyma þeim. Mitt eftirlætisgrín er f>'r,r
ferðarlítið; það þarf enginn að detta á rass
inn mín vegna."
— Tileinkarðu þér einhverja lífsspek'-
„Já, ég legg mikið upp úr augnablik>nU_
Andartakið er mjög dýrmætt. Eg reyni^3
njóta þess því að það kemur ekki aftur-
Keppni í tónsmíöum fáránleð
Úr því að mér hefur tekist að pota mér
inn til Valgeirs er óhjákvæmilegt að minn'
12