Æskan - 05.10.1987, Page 14
Enn á 'ný efna Æskan og Rás 2 til glæsilegrar
verðlaunasamkeppni í samvinnu við Flugleiðir. Allir
lesendur blaðsins yngri en 17 ára geta tekið þátt í henni.
Miðað er við fæðingarár, ekki dag. Samkeppnin er tvíþætt:
a) Þátttakendur svari 10 spurningum um tónlist.
b) Smásagnasamkeppnl.
Keppnin er með svipuðu sniði og í fyrra en þá var mjög
góð þátttaka, 144 smásögur bárust. Söguefnið er frjálst.
Þetta má vera ævintýrasaga, ferðafrásögn, spennusaga
eða raunsæ frásögn. Æskileg lengd sagnanna er frá einni
vélritaðri síðu til fimm — eða tvær til tíu handskrifaðar
blaðsíður. Við efum ekki að margt leitar á huga ykkar,
atvik sem hafa gerst eðu mættu gerast. Færið það í
fallegan búning og vandið frágang. Látið dómnefndina
hafa nóg að starfa. Hún tekur því vel! Nefndina skipa:
Gunnvör Braga deildarstjóri barna- og unglingadeildar
Ríkisútvarpsins,
Eðvarð Ingólfsson ritstjóri,
Sæmundur Guðvinsson blaðafulltrúi Flugleiða.
Verðlaunasagan verður birt í Æskunni og flutt í útvarpi.
Einnig mun Æskan birta nokkrar þeirra sagna sem fá
aukaverðlaun.
Myndarleg verðlaun
Þið hafið auðvitað þegar séð hver verðlaunin verða a
fyrirsögn og mynd: Ævintýraferð fyrir tvo til Flórída í
Bandaríkjunum. I næsta blaði verður sagt nánar frá tilhog
ferðarinnar en við getum þegar látið uppi að DisneylanC*
verður heimsótt! Dregið verður úr réttum lausnum í
tónlistargetrauninni. Annar vinningshafinn verður sá sem
er svo heppinn að lausn hans er fyrst dregin út. Hinn
verður sigurvegarinn í smásagnasamkeppninni.
Aukaverðlaun, bók og hljómplötu, hljóta 30 þátttakendur
— 15 úr hvorri keppni.
Skilafrestur
Skilafrestur ertil 10. desember nk. Smásögur og lausmr
sendist ritstjórn Æskunnar; utanáskrift:
Æskan, pósthólf 523,121 Reykjavík.
Dregið verður um hverjir hljóta vinninga í
tónlistargetrauninni í beinni útsendingu í Morgunþætti
Rásar 2 á Þorláksmessudag, 23. desember nk. .
Þá verður einnig tilkynnt hver hafi orðið
skarpastur í smásagnasamkeppninni.
Allar nánari upplýsingar um keppnina er hægt að fá á
ritstjórn Æskunnar, sími 10248. Gangi ykkurvel!
14