Æskan - 05.10.1987, Síða 21
eftir Eðvarð Ingólfsson
^jálfraddaður en vonar að hún heyri
Pað ekki.
. ^ún virðir hann fyrir sér stutta stund
e'ns 0g hún sé undrandi.
" Gaman að sjá þig! segir hún svo
°§ bros færist yfir andlit hennar. Hún
®ndur á fætur. Ég hefði sennilega
e ki þekkt þig að fyrra bragði. Mynd-
'n’ sem þú sendir mér, var ekki ný. Er
pað nokkuð?
^onandi hefur hún ekki orðið fyrir
V°nbrigðum.
Nei, hún var tekin í fyrra. Ég átti
aðra. Hann stingur lófunum vand-
r$ðalega í vasana.
^ún horfir beint í augu honum.
. Mér finnst núna að ég hafi séð þig
anorfendahópnum þegar ég keppti á
nióti ÍA.
Hún man þá eftir honum! Það er
§óðs viti.
~~ Það getur passað. Ég sá báða
'e>kina.
Stutt þögn.
— Varstu búin að bíða lengi? spyr
hann til að segja eitthvað.
— Nei, svona fimm mínútur. Þú ert
mjög stundvís.
Aftur þögn. Þau horfa vandræðalega
í kringum sig. Hvorugt þeirra veit hvað
á að segja. Allar setningarnar, sem
hann var búinn að semja á Akraborg-
inni til að halda uppi líflegum samræð-
um, eru týndar. Það er ómögulegt að
vita hvert þær hafa flogið.
Hún verður fyrri til að rjúfa þögnina.
— Eigum við ekki að flýta okkur í
bíó? spyr hún og lítur á úrið sitt. Mynd-
in hefst eftir tíu mínútur. Við megum
hafa hraðan á ef við ætlum að ná í góð
sæti.
Hann er feginn að hún nefnir þetta.
Þau þurfa þá ekki að standa lengur eins
og styttur á miðju torgi.
Litlu seinna eru þau búin að planta
sér í sæti á besta stað í Bíóhúsinu.
Smátt og smátt liðkast um málbeinin og
feimnin hverfur. Þau ræða um heima
og geima, áhugamál sín og nokkra frá-
bæra krakka sem þau þekkja á meðan
þau bíða eftir að sýningin hefjist.
Svo eru ljósin slökkt og þá er bannað
að tala þó að hann langi til að halda því
áfram af því að þau voru komin á svo
gott skrið.
Svenni á dálítið erfitt með að ein-
beita sér að myndinni því að hann er
alltaf að hugsa um Agnesi. Hver hefði
trúað því fyrir tveim mánuðum að þau
ættu eftir að fara saman í bíó? Er þetta
tilviljun ein eða ætlaði forsjónin þeim
að hittast? Honum finnst ótrúlegt að
hann skuli sitja þama við hliðina á
henni.
í hléinu kaupa þau sér kók og popp
og halda áfram að spjalla. Hann getur
ekki annað merkt en hún kunni vel við
hann. Hún er glaðlynd og brosmild og
hann reynir líka að vera hress.
Eftir bíóið ganga þau niður að Tjörn.
Þar er margt ungt og gamalt fólk að
gefa öndunum. Þau setjast á bekk við
Iðnó og láta fara vel um sig. Það kjaftar
á þeim hver tuskan. Svo byrjar Agnes
að líta á klukkuna. Hún þarf að mæta á
æfingu eftir hálftíma, segist vera tutt-
ugu mínútur á leiðinni.
— Ég get því miður ekki sleppt
henni þó að ég fegin vildi vegna þess að
það á að velja í liðið fyrir morgundag-
inn. Ég var búinn að nefna það við þig í
símanum, segir hún afsakandi — líkt
og hún taki nærri sér að þurfa að þjóta
burtu.
Þau ganga í átt að næstu strætóstöð.
— Heyrðu, segir hann hikandi þeg-
ar þau eru komin inn í biðskýlið. Þau
eru þar ein. Hann er að leita að bestu
orðunum. Viltu að við hittumst aftur
síðar? Hann þorir ekki einu sinni að líta
upp til hennar.
Hún horfir forviða á hann — eins og
hún skilji ekki í honum að vera að
nefna þetta.
— Alveg endilega! segir hún og
meinar það áreiðanlega. Ég kann svo
vel við þig. Ég vildi að við gætum spjall-
að meira saman og kannski farið inn á
veitingahús og fengið okkur kók og
ís. . Hvenær heldurðu að þú komir aft-
ur í bæinn?
Hann er þá ekki alveg glataður!
— Fljótlega, svarar hann án þess að
hugsa sig frekar um. Vinur minn, sem á
heima hérna, á afmæli eftir hálfan mán-
uð og hefur boðið mér í veislu.
Leið 13 rennur að, vagninn sem hún
bíður eftir.
— Þú verður að hafa samband, segir
Agnes sannfærandi. Ég verð reið ef þú
gerir það ekki. Lofarðu því? Það
bregður fyrir ljóma í augunum.
Svenni kinkar kolli.
— Það bregst örugglega ekki, vertu
viss.
Svo blimskakkar hún augunum og
brosir til hans um leið og hún stígur upp
í vagninn.
— Takk fyrir bíóferðina, segir hún.
Ég hlakka til að sjá þig aftur.
— Sömuleiðis, segir hann og veifar
brosandi til hennar.
Svona rænir vagninn stelpunni hans
og þýtur með hana inn í bflaþyrping-
una.
Svenni stendur eftir hreyfingarlaus
— harðánægður með daginn. Hann er
strax byrjaður að hugsa um næstu bæj-
arferð.
Hvað hann hlakkar mikið til að hitta
hana aftur!
Seinni hluti birtist í jólablaðinu.
21