Æskan - 05.10.1987, Blaðsíða 43
EFTIR NEMENDUR í HÚSABAKKASKÚLA
X™ >ftqUi
r.
‘3>Lí
VII. KAFLI
^veinn Kiartan Sveinsson tekur
viö;
Skriðan í Skuggadal? Ég mundi að
'egurinn átti að liggja meðfram henni á
afla. Meðan ég var að hugsa um þetta
§ekk ég að glugganum og leit út. Þá
, vjknaði sterkt ljós fyrir utan og skein
e’nt framan í mig. Svo slökknaði það
eu ég var dálítinn tíma að jafna mig í
aagunum. Þegar ég fór að sjá greinilega
aflur sá ég blika á hníf fyrir framan mig.
§ leit upp og þóttist vita að maðurinn,
^ hélt á hnífnum, væri Skugga-Bald-
~~ Vegurinn verður ykkur dýr ef þið
§erið ekki eins og mér er sagt að segja
ykkur, sagði Baldur. Það búa álfar í
þessari skriðu hjá Skuggabjörgum og
þeir kæra sig ekkert um veg þama. Þið
munuð verða fyrir skriðuföllum, snjó-
flóðum og vélarbilunum og á endanum
gefist þið upp á vegarlagningunni.
Baldur gekk út úr húsinu án þess að
segja meira. Ég velti fyrir mér þessari
álfasögu. Svona tilfelli voru svo sem
ekki einsdæmi í vegagerð en ekki var
gott að vita hvað var satt og hvað logið í
þeim sögum. Gat það virkilega verið að
Baldur teldi sig vera í sambandi við
álfa? Eða var hann að nota þessa að-
ferð til að koma veginum burt af jörð
sinni? Ekki fannst mér Baldur þessleg-
ur að hann væri miðill eða neitt þess
háttar.
VIII. KAFLI
Birkir Árnason segir frá:
Ég sá að eitthvað varð að gera í þessu
máli sem fyrst því að bráðlega átti að
hefja undirbúningsframkvæmdir í
Skuggadal. Kannski þurfti að fresta að-
gerðum um sinn meðan athugað væri
betur hvað væri á seyði.
Morguninn eftir fékk ég lánaðan
jeppa hjá Vegagerðinni og fór út að
Skuggabjörgum. Ég litaðist um á vænt-
anlegu vegarstæði og sá að það var al-
veg uppi við skriðuna. Síðan átti vegur-
inn að liggja fast við túngarðinn á
Skuggabjörgum. Meðan ég var að
reika þama um datt mér dálítið í hug.
Ég flýtti mér heim, náði í símaskrá og
leitaði að Geirlaugi E. Guðmundssyni
Hann var einmitt maðurinn til að svara
spumingum um mál eins og þetta.
Hann hafði verið viðriðinn svona álfa-
sögur áður.
Ég hringdi og hann svaraði sjálfur í
símann.
— Halló, Geirlaugur hér.
— Komdu sæll. Ég heiti Bergur
Jónsson verkfræðingur. Ég er að vinna
að vegarlagningu um Skuggadal og það
er eitthvað skrýtið að gerast í kringum
það allt saman. Mig langar að vita
hvort einhvern tímann hefur verið
minnst á álfa þar?
— Ekki veit ég til þess, sagði Geir-
laugur. En við getum kannski bara far-
ið saman og athugað það?
43