Æskan - 05.10.1987, Page 56
Á Stóra-torginu í gamla bænum
sem sigldi um mestallan Stokkhólm.
Við fengum ágæt sæti úti og létum fara
vel um okkur. Fremst í bátnum sat leið-
sögumaður sem skýrði á sænsku og
ensku frá því sem fyrir augu bar. í þess-
um báti var mikið af skólakrökkum á
aldrinum 8-11 ára með kennurum sín-
um. Nokkrir strákar sátu fyrir framan
okkur og var gaman að fylgjast með
þessum ærslabelgjum. Einn þeirra var
alltaf að reyna að koma vini sínum í
kynni við stelpu sem var í þessum hópi
líka. Og hann fór margar ferðir á milli
þeirra hjúa. Ekki vitum við nákvæm-
lega hvernig þetta endaði allt saman en
tre^ voru þau bæði og voðalega feimin.
I þessari ferð fórum við í skipaskurð
en það eru nokkurs konar hólf sem siglt
er inn í þegar hæðamismunur er á vatn-
inu. Síðan annað hvort hækkar eða
lækkar vatnsborðið eftir því sem við á-
Eftir þessa reisu, sem tók 2 tíma, fórum
við á æðislegan hamborgarastað og
fengum okkur auðvitað hamborgara og
franskar.
Því næst héldum við í gamla bæinn
aftur. Þá sáum við meðal annars kon-
ungshöllina og létum mynda okkur þaf
með einum lífverði drottningar. Hann
gætti þess þó vel að við værum í hæfi'
legri fjarlægð því að hann var inni í af'
mörkuðum hring og inn fyrir hann
máttum við ekki stíga.
Stundum sáum við menn vera að
syngja eða spila á götunum með hatt-
ana sína fyrir framan sig svo að fólk
gæti hent aurum í þá.
Loks skelltum við okkur á Skansinn-
En það er mjög stór skemmtigarður
með tívolí og ýmsu öðru, svo sem dýra-
garði og þangað lá leið okkar. Hann
var mjög stór svo að við vorum lengi að
ganga hringinn. Veður var með ein-
dæmum gott, glampandi sól og svo að
segja alveg logn. Þarna voru mörg dýr
sem við höfðum ekki augum litið áður
og gaman var að sjá.
Framhald í næsta blaði.