Æskan - 01.01.1990, Blaðsíða 17
Tillögur um efni
Kæri Æskupóstur!
Eg sendi þér tillögur um efni og
nokkrar spurningar.
Það væri hægt að hafa fleiri get-
raunir og þrautir sem tengjast frægu
fólki. Þær eru mjög skemmtilegar.
Einnig fleiri krossgátur en nú eru.
Mér finnst flestar þrautimar erfiðar
og ekki mjög skemmtilegar. Þið
mættuð halda áfram með Eftirlæti.
Gleymið ekki að hafa Sálina hans
Jóns míns og Madonnu með.
Viljið þið fá Stefán Hilmarsson til
að svara spurningum aðdáenda? Af
hverju vom ekki myndir af Madonnu
og Michael J. í þættinum, Við safnar-
ar, fremur en myndir af fólki sem
ekki er eins frægt? Getið þið látið
veggmynd af Madonnu og Batman
fylgja blaðinu?
Hvað er í verðlaun fyrir rétta lausn
á þrautum? Getið þið haft popp-
þraut?
Sálin hans. . .
Svar:
Við tökum ábendingar um efni til
vinsamlegrar athugunar. Myndir af
M og M hafa birst hvað eftir annað í
blaðinu. Þess vegna veljum við mynd-
lr af öðrum en þeim í safnara-dálk-
ana. Oftast nœr sendum við bœkur
sem verðlaun. Madonna verður vœnt-
anlega á veggmynd sem fylgir 2. tbl.
1990.
Um pennavini
Sæll, Æskupóstur!
Mig langar til að segja frá penna-
vinum mínum. Þeir eru 46! - dreng-
ir og stúlkur úr öllum heimsálfum.
Fimmtán af pennavinum mínum eiga
heima á Nýja Sjálandi. Þeir hafa boð-
ið mér að koma þangað - en raunar á
minn eigin kostnað. Það eru litlar lík-
ur á að ég fari þó að ég hafi hug á að
reyna sem skiptinemi.
Margir pennavina minna höfðu
aldrei heyrt Islands getið áður en ég
skrifaði þeim. Sumir spyrja kjána-
legra spurninga á borð við: „Er sjón-
varp hjá ykkur?“
Flestir spyrja hvernig veðurfar sé
hér. Ef ég segði að hér snjóaði allt ár-
ið tryðu þeir mér eflaust. Þeir halda
að fsland sé eins og Norðurpóllinn.
- Það sem mér hefur fundist ótrúlegt
er að í Japan og á Nýja-Sjálandi snjó-
ar í hæstu fjöll og þar fer fólk á skíði.
Ég hef kennt einni pennavinkonu
minni, Gilberte frá Seychelle-eyjum,
að skrifa nokkur orð á íslensku. Ég
veit til þess að hún hefur skrifað bréf
á ensku fléttað íslenskum orðum.
Hún á 15 pennavini hér á íslandi.
Það er gaman að eiga pennavini ef
maður hefur áhuga á bréfaskriftum,
annars verða bréfln stutt og leiðinleg.
Ég og pennavinir mínir segjum frá
ýmsu, til að mynda hvað gerst hefur
undanfarna daga; við lýsum landi
okkar, sendum frímerki, myndir,
póstkort og stundum afmælisgjafir;
við treystum pennavinum fyrir leynd-
armálum og ég hef verið beðin að
leysa vandamál; einn pennavinur
minn spyr um trúmál því að hann er
Gyðingur og forvitinn um Lúterstrú.
Ég get sent þeim sem vilja eyðu-
blað til að óska eftir pennavinum
- en á ekki mörg blöð eftir. Þið getið
valið um pennavini frá 104 löndum! I
staðinn vildi ég gjarna fá umslög með
frímerkjum frá fjarlægum löndum.
Má senda sælgæti til útlanda?
Inga Karlsdóttir,
Hraunsvegi II, 260 Njarðvík.
Þökk fyrir fróðlegt bréf.
Sœlgœti má senda til útlanda. . .
Um hlaupasting
Hæ, Æska!
Ég var að lesa í gamalli Æsku. í
henni spurði stúlka hver ráð væru við
hlaupasting. Ég hef ágætis ráð:
Þegar hlaupastingur gerir vart við
sig er ráðlegt að reyna að teygja hend-
urnar upp í loft þannig að togni vel
úr staðnum sem hlaupastingurinn er
á. Síðan má þrýsta hendinni á stað-
inn. Ekki hætta því sem verið er að
gera.
Mig og tvær vinkonur mínar langar
til að athuga hvort þið getið ekki birt
veggmynd af Kiss.
Kolla.
í 4. tbl. Æskunnar 1989, á bls. 17,
birtum við ráðleggingar lceknis (og
langhlaupara) til að draga úr - losna
við hlaupasting. . .
Burt með bólur!
Halló, frábæri þáttur!
Mig langar til að koma á framfæri
góðum ráðum til þeirra sem stríða við
bólur. (Ég er sjálf að losna við mínar)
Mjög mikilvægt er að halda húð-
inni hreinni, t.d. með vatni eða
hreinsandi smyrsli. Afar óæskilegt er
að borða súkkulaði og heppilegt er að
draga úr neyslu mjólkurvara. Ég
mæli hka með því að sá sem vill losna
við bólur drekki mikið vam og borði
epli.
Ein fimmtán ára
Þökk fyrir ráðleggingar.
Ef til vill rœður Nanna Kolbrún þér
heilt í þœttinum Æskuvanda. . .