Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1990, Page 38

Æskan - 01.01.1990, Page 38
Knáir krakkar \ sögulegri fjaiiaferð Framhaldssaga eftir Iðunni Steinsdóttur Pið kannist öll við bráðskemmtilegar og ágætar sögur eftir Iðunni Steinsdóttur verðlaunarithöfund. Margar þeirra hafa verið gefnar út á bók, aðrar hafa birst í blöðum, til að mynda Æskunni. Hér hefst framhaldssaga eftir Iðunni, um krakkana knáu, Búa, Lóu og Hróa. . . Lagt á fjöllin j Þau standa og veifa, öll þrjú. Halda § áfram svo lengi sem þau sjá bílinn og | hætta ekki fyrr en hann hverfur í skýi af | ryki langt niðri á vegi. | Þá líta þau hvert á annað og hlæja. | - Vei, við erum komin af stað, æpir | Búi og stekkur í háaloft. | — Heil vika á fjöllum og enginn sem § segir hvenær við eigum að fara að | sofa, tístir Lóa. | - Engir litlir bræður sem elta mann | á röndum og vilja vera með, segir Hrói % og brosir svo breitt að augun verða að 5 mjóum rifum og hverfa næstum bak | við bústna vangana. | - Við skulum leggja í hann, segir | Lóa. | - Eigum við ekki að fá okkur bita | fyrst? spyr Hrói sem alltaf er svangur. § - Ekki strax, þú ert nógu þungur á | þér, segir Búi og hlær. Þau setja upp bakpokana og ganga | af stað. Þessi ferð er gamall draumur | sem nú er loks að rætast. Síðan þau § fóru í útilegu heima í sveitinni sinni tíu I ára og lentu í kasti við fálkaþjófa hefur | 1 íj ■•■i ií S'; Vi i í- rí Íi % : 42 Æskan skoða ókunna staði og lenda ef til vill í einhverju óvæntu. En ýmis ljón hafa verið í veginum. Amma hans Búa var hræddd um að hann færi sér að voða. Mamma Lóu gat ekki hugsað sér að sleppa litla baminu sínu einu út í hinn stóra heim. Og Hrói komst ekki að heiman af því að hann varð að hjálpa mömmu með yngri krakkana. Líklega hefðu þau aldrei fengið að fara ef Sara hefði ekki lagt þeim lið. Sara er gömul kona sem vinnur í búðinni hjá pabba Lóu. Hún bjargaði þeim úr haldi frá fálkaþjófunum á sín- um tíma. Hún er mesti vargur og lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. - Leyfið þið þeim að fara. Þau eru orðin tólf ára og hafa bara gott af að standa á eigin fótum, sagði hún. - Þeim gæti orðið kalt, sagði amma Búa. | — Ég held þau geti klætt sig, sagði | Sara. | - Þau geta ekki borið með sér mat | til heillar viku, sagði Fríða mamma | Hróa sem vissi hvílík ósköp sonur 'í hennar borðaði á einni viku. £ fi - Uss, þau geta borðað hnetur og j| rúsínur. Svo má láta þau hafa lögg af | lýsi, sagði Sara. | - En ef þau verða matarlaus? sagði 1 Ólöf, mamma Búa. J~h | - Þá tína þau sveppi, ber og hunda- | súrur, sagði Sara. fj Þær létu undan og nú eru þau kom- $ in hingað. % Bakpokinn hans Búa er alveg að | sliga hann af því að amma tróð svo § miklu af fötum í hann. Búi nemur stað- | ar og dæsir. | - Úff, öll þessi lopaföt sem hún amma lætur mig draslast með. Pokinn | er alltof þungur. | — Þú ættir þá að finna minn. Nestið | er svo þungt að það er að gera út af | við mig. Þess vegna vil ég að við fáum | okkur að borða, stynur Hrói. | - Við göngum upp á hæðina þama. | Þar hvílum við okkur og borðum, segir | Lóa. fj Þau fleygja sér niður másandi þegar | þau koma upp á hæðina. Það er gott | að hvíla sig. | Þau fækka fötum því að sólin vermir | og þau em orðin sveitt af að erfiða upp | hæðina. | Nestið er gott. Hrói treður munninn •| á sér svo fullan að hann getur ekki tal- | a^- | - Þú verður búinn með nestið eftir tvo daga ef þú heldur svona áfram, | segir Lóa. | - Nei, ég er með alveg glás af hnet- | um og súkkulaði, segir Hrói. I - Eg er með harðfisk. Fúsi frændi

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.