Æskan - 01.01.1990, Blaðsíða 3
Kæri lesandi!
Þú hefur nú í htöndum 1. tbl. ársins 1990, 91. árgangs
-Æskunnar. Vonandi hefur það verið þér áLnægjulegt undr-
unarefni að finna að það er þykkra og efnismeira en
venjuleg tölublöð hafa verið — öll önnur en jólablöðin.
Með þessari breytingu komum við til móts við óskir um
enn meira efni á hverju ári en verið hefur í blaðinu til
þessa.
Stefnt er að því að hafa tvær veggmyndir með hverju
tölublaði. Höfðar önnur til ungra lesenda en hin til þeirra
sem stálpaðri eru. Þær eru að vísu á sama blaðinu og því
kann að vera að systkini vilji hvort (hvert) sína mynd.
Við munum gæta þess að prenta fleiri veggmyndir en
þarf í upplag Æskunnar og verðum fuslega við beiðni um
að fá aukaeintak sent.
Sverrir Ólafsson hefur búið til þrautir fyrir Æskuna í
mörg ár. Hann er búsettur í Svíþjóð og vinnur nú að dokt-
orsritgerð í guðfræði. Hann óskaði eftir að annar yrði
fenginn í sinn stað. Margrét Thorlacius kennari tekur nú
við og annast þrautasíðurnar. Við fögnum því að hafa
fengið hana til starfa og bjóðum hana velkomna — um
leið og við þökkum Sverri kærlega fyrir samvinnuna.
Æskupóstur er á sex blaðsíðum. Ég varð að grynnka á
bréfahrúgunni! Þó bíða mörg bréf svars. Vonandi tekst að
svara þeim áður en langt um líður.
Ég vona að árið reynist þér og fjölskyldu þinni farsælt.
Með kærri kveðju,
Kalh.
'■ tbl. 1990. 91. árgangur
Skrifstofa er að Eiríksgötu 5,
3' hceð.
Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu
blaðsins 17336; á skrifstofu 17594.
Áskriftargjald jan.-júní 1990;
1800 kr. — 5 blöð.
Gjalddagi er 1. mars.
Áskriftartímabil miðast við hálft ár.
Lausasala: 395 kr.
Póstáritun: Æskan, pósthólf 523,
121 Reykjavík.
2. tbl. kemur út 5. mars.
Ritstjórar:
Karl Helgason, ábm., hs. 76717
Eðvarð Ingólfsson, hs. 641738
([ starfsleyfi frá 1. janúar 1989)
Teikningar: Guðni Björnsson
Útlit, umbrot og filmuvinnsla:
Offsetþjónustan hf.
Litgreiningar: Litgreining
Prentun og bókband:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi er Stórstúka Islands
I.O.G.T. Æskan kom fyrst út
5. október 1897.
Eorsiðumyndin er af Astrós Elísdóttur og Gunnari Emi Ingótfssyni
^ttgvurum; Stefáni Karli Stefánssyni og Pórunni Evu Hallsdóttur leikurum.
Úósm.: Guðmundur Viðarsson.
Rokklingamir Astrós og Gunnar Óm
í viðtali - bls. 8
Úrslit í vinsceldavali Æskunnar
- og annarra. .. - bls. 4ó
Rabbað við unga leikara,
Stefán Karl og Pórunni - bls. 14
I
grímulaus
- Michael Keaton kynntur - bls. 35
Efnisyfirlit
Viðtöl og greinar
7 „Les altt sem ég nœ I"
- rabbað við Gretu Jessen,
sigurvegara í smásagnakeppni
Æskunnar og Bamaútvarpsins
8 „Nína átti heima á nœsta
bœ..."
Rokklingamir „Nína og Geiri",
Ástrós og Gunnar Óm, í viðtali
14 Þú ert í blóma lífeins...
- spjallað við unga leikara,
Stefán Karl og Þórunni
60 ,. .skemmtilegt og skondið
- sagt frá bamaleikritum
Sögur
7 Samviskubit
22 Álfadans
29 Samviskusafnarinn
38 Er ég að verða stór?
42 Knáir krakkar
í sögulegri fjallaferð
54 Einelti
Þœttir
16 26 44 Æskupóstur
18 Aðdáendum svarað:
Stefán Hilmarsson
28 Úr riki nátfúrunnar
35 Leikarakynning:
Michael Keaton
46 Poppþátturinn
50 Vísindaþáttur
56 Æskuvandi
Ýmislegt
4 Myndaþraut
5 Úrslit í verðlaunasamkeppni
Æskunnar og Bamaútvarpsins
11 24 40 Prautir
12 Heilbrigt líf án áfengis
13 Kátur og Kútur - Ráðhildur Rós
20 Spumingaleikur
37 Við safnarar
52 Pennavinir
62 Verðlaunahafar - lausnir
Æskan 3