Æskan - 01.01.1990, Page 18
Stefán Hilmarsson, vinsælasta poppstjarnan.
I 'WKB/ 0 A'
0 AÁ á
„Reyní
að draga
fram
líflð sem
tónlístarmaður. , .
bar mér þá hræðilegu frétt snemma
morguns 9. desember 1980 aðjohn Lenn-
on hefði verið myrtur kvöldið áður. Ég
man meira að segja eftir því að ég var að
fara úr skónum fyrir íslenskutíma hjá
Baldri Sveinssyni - að því er mig minnir í
sjöttu stofu í Hlíðaskóla.
Hvert var helsta tómstundagaman þitt
á barns- og unglingsaldri?
Handknattleikur og aðrar íþróttir voru
alltaf númer eitt, tvö og þrjú. Síðar bætt-
ust við skellinöðrur, tölvuspil og eltinga-
leikir við stúlkur.
Getur þú sagt okkur frá skemmtilegu
atviki á þeim árum?
U
Stefán Hilmarsson svarar
aðdáendum sínum,
Hvar og hvenær ertu fæddur?
Á fæðingarheimilinu í Reykjavík 26. júní
1966.
Hvar ólstu upp?
Aðallega í Reykjavík.
Áttu systkini?
Fimm yngri hálfsystkini. (Það eru fjórar
stelpur og einn strákur)
Hafa þau leikið á hljóðfæri eða sungið í
hljómsveit?
Tvær systranna hafa blásið töluvert í lúðra
með lúðrasveitum.
Hvað manstu best frá bernsku þinni eða
unglingsárum?
Ætli það hafi ekki verið þegar vinur minn
Ég held að ég hafi sjaldan á þessum árum
orðið jafn sæll og þegar Valsmenn komust
í úrslitaleik Evrópukeppninnar í hand-
knattleik. Ég er eldrauður Valsari og var
að sjálfsögðu í Höllinni það kvöld. - Þvílík
sæluvíma.
Hvað hefur þér þótt sárast á æviferlin-
um?
Meðal annars það að hafa ekki verið nema
4-5 ára gamall þegar hljómsveitirnar Led
Zeppelin og Deep Purple komu hingað til
lands.
En ánægjulegast?
Sem betur fer er margs ánægjulegs að
minnast og allt of langt mál væri að telja
það upp hér.
I hvaða skólum stundaðir þú nám?
Öldugötuskóla (sem nú heitir Vesturbæj-
18 ÆskaJl
arskóli), Laugarnesskóla, Hlíðaskóla,
Kvennaskólanum — og auðvitað Ökuskól-
anum. . .
Stefnir þú að frekara námi?
Já, það geri ég.
Hefur þú lært á hljóðfæri? En söng?
Örlítið á blokkflautu og orgel í æsku en
söng hef ég aldrei lært.
Með hvaða hljómsveitum hefur þú sung-
ið?
Bjargvættinni Laufeyju, Sniglabandinu og
Sálinni hans Jóns míns.
Hvað starfar þú nú?
Ég reyni að draga fram líflð sem tónlistar-
maður en einnig starfa ég dálítið við sjón-
varp og stöku sinnum í verslun.
Stundar þú íþróttir? Hefur þú æft ein-
hverja grein?
Ekki eins og er en skrepp þó öðru hverju
í líkamsrækt. - Ég hef æft handknattleik,
knattspyrnu, körfubolta og frjálsar íþrótt-
ir.
Hverjar eru eftirlætis-íþróttagreinar
þínar?
Handbolti og snóker.
En íþróttamaður?
Þeir eru mýmargir. Ég er svo íþróttalega sinn-
aður að ég hef dálæti á hverjum þeim sem nær
að skara fram úr á sínu sviði. Núna dái ég
mest, að öðrum ólöstuðum, handboltamennina
„okkar“, til að mynda Alfreð Gíslason og Vals-
mennina Júlíus Jónasson, Geir Sveinsson, Valdi-
mar Grímsson og Jakob Sigurðsson - svo að
einhverjir séu nefndir.
Á hvaða hljómlistarmönnum hefur þú
mest dálæti, - íslenskum og erlendum?
Þeir eru svo margir að Æskan þyrfti að
gefa út aukablað til þess að koma nöfnum
þeirra fyrir.
En hljómsveitum?
Svarið er það sama og við spurningu um
hljómlistarmenn en ég get þó nefnt
nokkrar:
Bítlarnir, Rolling Stones, Whitesnake, Led
Zeppelin, Deep Purple, Living Colour,
Deacon Blue, Tears for Fears, Cock Rob-
in, Prefab Sprout, Cult, Aerosmith, Abba,
Ný dönsk, Skid Row, Supertramp, Inxs,
Bon Jovi, Elo, U-2, A-Ha, Queen, Iron
Maiden, Todmobile, Simply Red, ZZ top,
Guns n’ Roses, Manhattan Transfer, Dire
Straits, Van Halen, Edie Brickel and New
Bohemians, Mötley Crúe, Sykurmolarnir
- o.fl., o.fl.!
Hverjir eru eftirlætisleikarar þínir?
Steve Martin og Jack Nicholsson.
Hefur þú gaman af sígildri tónlist?
já, en þó ekki hverju sem er.
Á hvaða tegund tónlistar hefur þú mest-
ar mætur?
Rokktónlist - og ég hef einnig mjög gam-
an af góðri og vandaðri söngleikjatónlist.
Hefur þú ferðast víða - hérlendis og er-
lendis?