Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1990, Side 28

Æskan - 01.01.1990, Side 28
Flestum fuglum hefur veriö gefinn sá hæfileiki að fljúga eins og allir vita. Líklega hafa færri hugmynd um að sumir fiskar geta þetta líka að vissu marki. Kannski væri þó réttara að segja að þeir svífi fremur en fljúgi því að um eiginlegt flug er ekki að ræða. Flugfiskar, eins og þessar tegundir eru kallaðar einu nafni, geta synt mjög hratt og nota einmitt hraðann til að ná sér á loft, svipað og flugvélar gera. Um leið og þeir sleppa haffletinum breiða þeir úr eyr- uggunum (ein tegund notar raunar fleiri ugga) og svífa þá oft 100-400 metra leið. Deilt er um hve hátt þeir komast enda erfitt að dæma um það úti á rúmsjó. Nefndar hafa verið tölur allt frá I metra upp í 12 og er það fyrrnefnda líklega nær lagi. Óhætt er því að fullyrða að þeir séu ekki „háfleygir". Ástæðan fyrir þessari undarlegu hegð- un fiskanna er í flestum tilvikum sú að þeir eru að flýja undan óvinum sínum. Má geta nærri að þeim sem eltir verður oft hverft við þegar hann sér bráðina allt í einu hefj- ast á loft og vafalaust kemur þá á hann fát sem nægir til þess að fiskurinn kemst und- an. Hann sleppur þó ekki alltaf því að stundum grípa sjófuglar hann á „fluginu". Fyrir kemur að flugfiskar dragast að Ijósi um borð í skipum og falla niður á þilfarið. 28 Æskan Flugfiskar eru ýmist með eitt eða tvö pör svifugga eða „vængja“. Á þeim síðast- nefndu eru eyruggar og kviðuggar álíka stórir og oft með fallegu litmynstri. Ein- ungis mjúkir geislar eru í uggunum. Alls er vitað um 40-50 tegundir flug- fiska og eiga þær flestar heima í heitum eða heittempruðum höfum. Svokölluð Atlantshafstvívængja, sem er sem sé með tvö pör af svifuggum, er algeng í Miðjarð- arhafi og norður eftir öllu Atlantshafi og hefur meira að segja komist inn á Osló- fjörð. Stærsti flugfiskurinn, um 50 sm á lengd, heldur sig hins vegar aðeins við strendur Kaliforníu. Hann er einnig fjór- vængjaður. Einvængjan (með eitt uggapar) er aðeins í heitum löndum og verður um 25 sm löng. Að ytra útliti minna flugfiskar dálítið á síld, einkum lögunin og hreistrið. Þeir eru sums staðar veiddir til manneldis, svo sem við Kaliforníu, en annars er mest af þeim notað í beitu fyrir sverð- og túnfisk. i

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.