Æskan - 01.01.1990, Side 40
Um sálfræðinám
Sæll, Æskupóstur!
Ég þakka fyrir gott blað. Mig lang-
ar til að biðja þig að svara nokkrum
spurningum:
Hvar er sálfræði kennd? Þarf að hafa
lokið stúdentsprófi til að leggja stund
á það nám? Er kennd læknisfræði
með eða eingöngu sálfræði?
Ég
Svar:
Sálfrceði er kennd við Háskóla ís-
lands - til BA-prófs. Flestir Ijúka því
á þrem og hálfu ári, hafa þá tekið 90
einingar sem kallað er. Einnig er
unnt að itema sálfrœði sem svarar 60
einingum og einhverja aukagrein 30
eininga; til að mynda fjölmiðlafrœði.
BA-prófið veitir ekki bein starfsrétt-
indi. Námið er að hluta til raunvís-
indalegt og að öðrum hluta er frœtt
um mannlega hegðun. Fólk með
þessa menntun hefur valið sér starfs-
vettvang til að mynda í blaða-
mennsku, við útgáfu- og auglýsinga-
störf og í ferðaþjónustu.
Til að fá starfsréttindi er hérlendis
unnt að lœra kennslufrœði í eitt ár
(kennsluréttindi í greininni) eða nema
félagsráðgjöf. Erlendis eru kenndar
ýmsar greinar í framhaldi af BA-
prófi. Það nám tekur frá einu/tveimur
árum til fjögurra/fimm ára.
Fólk með sálfrœðimenntun fœst við
stöif af ýmsum toga: Umönnun og
meðferð þeirra sem eru hugsjúkir eða
geðveikir; ráðgjöf til nemenda og að-
stoð við skólastjórnendur vegna
skipulags í skólum; rannsóknir;
starfsmannastjórn.
(Upplýsingar veitti Sigurður Júlíus
Grétarsson lektor við félagsvísinda-
deild Háskólans)
Um eftirlætissöngvarann
og fjölmiðlafræði
Æskupóstur góður!
Þökk fyrir pistilinn um Jason
Donovan í 8. tbl. og veggmyndina og
myndirnar í 9. tbl.
Jason er eftirlætissöngvarinn minn
enda hefur hann æðislega góða rödd
og er „meiriháttar“ sætur.
Ef þið viljið get ég sent ykkur fróð-
leiksmola um Jason.
Mig langar til að verða fjölmiðla-
fræðingur. Ánægð yrði ég ef ég fengi
svör við þessum spurningum:
Hvað tekur fjölmiðlafræðinám
mörg ár? Vantar fjölmiðlafræðinga til
starfa hér á landi eða eru þeir of
margir? Er greinin kennd við Há-
skóla íslands? Hvar getur fólk með
þá menntun fengið góða vinnu og
hver eru launin?
Aðdáandi Jasons.
Svar:
Fróðleiksmola þiggjum við með
þökkum.
í Háskóla íslands er fjölmiðlafrœði
einungis kennd sem aukagrein - enn
sem komið er. Kennslan er frœðileg,
nátengd félagsfrœði; ekki kennsla í
blaðamennsku. Algengt er að lögð sé
stund á fjölmiðlafrœði (30 einingar)
með námi í stjórnmálafrœði.
Félagsvísindadeild H. I. hefur gert
tillögu um að hefja kennslu íJjölmiðl-
un nœsta haust. Það yrði eins árs
nám í blaðamennsku og fjölmiðlun
- og þar kennd íslenska, fjölmiðla-
réttur og hagnýt fjölmiðlun.
Fjölmiðlun er einnig kennd að ein-
hverju marki í sumum framhaldsskól-
um og á námskeiðum í Tómstunda-
skólanum.
Erlendis er fjölmiðlun kennd með
ýmsum hœtti á háskólastigi; þar getur
hún verið aðalgrein.
Þorbjörn Broddason dósent frœddi
okkur um þetta atriði. Hann sagði
það skoðun sína að fjölmiðlun vœri
þjóðfélagslega mikilvœgur vettvangur
og miklu máli skipti að þeir sem við
hana störfuðu vœru vel menntaðir til
þess.
í þessum mánuði mun hefjast
kennsla í Fjölmiðlaskóla íslands.
Hann er rekinn af Viðskipta- og
málaskólanum í samvinnu við Blaða-
mannafélag íslands. Þar verður unnt
að stunda fjölmiðlanám á háskóla-
stigi, að loknu stúdentsprófi, og tekur
námið eitt ár. Það skiptist í þrjár ann-
ir og verður kennd þjóðfélagsfrœði,
inngangur að blaðamennsku og út-
varpsstörfum, verklag á fjölmiðlunt,
tölvunotkun; dálítið í sálar- og félags-
frœði og um auglýsinga- og markaðs-
mál. Stefnt er að því að gera nemend-
ur hœfa til að vinna á fjölmiðlum
- álíka og þeir hefðu lœrt erlendis.
(Gunnar Már Gunnarsson mark-
aðsstjóri gaf þessar upplýsingar)
Allmargir munu nú stunda nám 1
fjölmiölafrœði og fjölmiðlun. Ekki er
gott að segja hverjar atvinnuhorfur
eru en um þessar mundir eru reknir
œði margir fjölmiðlar. Við bendum
þér á leita til einhvers þeirra með fyr-
irspurn um launakjör. Þau eru eflaust
mismunandi.
44 Æskan