Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1990, Qupperneq 41

Æskan - 01.01.1990, Qupperneq 41
Stjörnumerki Kæri Æskupóstur! Hvernig eiga vatnsberi sem fæddur er 12. 2. 1976 og sporðdreki, fæddur 19.11. 1977 um kl. 3.30, saman? Mig langar til að biðja um vegg- mynd með Guns n’ Roses og viðtal við Bjarka Sigurðsson. Eg vildi gjarna að Æskan kæmi út tólf sinnum á ári. Sporðdreki. Svar: í 1. tbl. Æskumwr 1989, á bls. 30, var fjallað um stjömuspeki og hvernig fólk eigi saman samkvœmt þeim frœð- um. Upplýsingar voru fengnar hjá Stjömuspekimiðstöðinni, Laugavegi 66, Reykjavík., s. 10377. Við bendum þér og öðrum sem áhuga hafa á að lesa pistilinn. . . Þér skyldi þó ekki hafa orðið að ósk þinni um veggmynd? Við röbbum eflaust við Bjarka - fyrr eða síðar. Um hunda Kæri Æskupóstur! Mig langar til að andmæla „hunda- vinum“ sem staglast á því að hundar eigt ekki að vera í borgum og bæjum. Mér finnst það alrangt. Hvaða gagn gera til að mynda Labradorhundar og hundar af tegundinni „Golden re- triever“ á sveitabæ? Þeir eru heimilis- °g veiðihundar en ekki smalahundar. Púðar (kjölturakkar) eru ekki heldur smalahundar. Ég veit um „Schafer- hunda sem eru á sveitabæ og eru til vandræða (þó að þeir séu fjárhundar að kyni). Svona mætti lengi telja. Það eru íslenski og skoski hundur- inn sem eiga best heima í sveit en eru íka heimilis- og borgarhundar. Um daginn var fluttur pistill á Rás um þetta mál og þar var þess getið a° sumum heimilishundum þætti skemmtilegra að læra ýmsar listir en að hlaupa eins og vitleysingar um all- ar sveitir. Sú fullyrðing að hundar eigi ein- gongu að vera í sveit er það sama og ® se8)a að hestar eigi aðeins að vera þar. Jóna. Aðdáendaklúbbar og hrossarækí K*ri Æskupóstur! M.g langar til að bera upp nokkrar "Purningar: Hvað kostar að vera í aðdáenda- klúbbum? Hvernig er hægt að gerast félagi? Starfar slíkur klúbbur er dáir Marilyn Monroe? 2. Hvað þarf maður að vera gamall til að hefja nám í hrossarækt? Er nauð- synlegt að hafa lært eitthvað um hesta áður? 3. Viljið þið senda límmiða með hverju tölublaði? Er hægt að birta hestamyndir? 4. Viljið þið birta eitthvað um Alice Cooper? Ég þakka gott blað. Edda. 1. Um aðdáendaklúbba er fjallað á bls. 59. Eflaust er til klúbbur er heiðrar minningu M. M. Ef við finn- um heimilisfang birtum við það á nefndri síðu. 2. Hrossarœkt er meðal þess sem kennt er í bœndaskólunum. Inn- gönguskilyrði er grunnskólapróf - en að sögn Sveins Hallgrímssonar skóla- stjóra á Hvanneyri er frekara nám œskilegt. Raunin hefur orðið sú að sumir þeirra er aðeins hafa grunn- skólapróf að baki eiga í erfiðleikum með námið. Segja má að í flestum greinum í bœndaskólunum séu kennd undirstöðuatriði í hrossarœkt. Ekki er alveg nauðsynlegt að hafa lcert eitt- hvað um hross áður en nám er hafið þar en að sjálfsögðu kemur það sér vel að hafa kynnst hrossum og með- ferð þeirra - eins og annarra dýra. 3. Límmiðar munu vœntanlega fylgja fjórum tölublöðum á þessu ári. 4. Við komum beiðninni á framfœri við umsjónarmann poppþáttarins. Viðtal við Bubba Elsku Æska! Ég yrði þér afar þakklát ef þú birtir þetta: Ég vil byrja á því að þakka gott blað. Þú mættir birta viðtal við Bubba Morthens og veggmynd af honum. Mér finnst líka að meira mætti vera í blaðinu af skrýtlum og þrautum, t.d. talnarugli, en nú er. R. Svar: Viðtal við Bubba birtist fyrir nokkr- um árum og annað veifið hefur verið sagt frá honum í poppþœttinum. At- hugandi er að fá hann til að svara að- dáendum. . .

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.