Æskan - 01.04.1991, Qupperneq 5
Lúðrasveit Laugarnesskóla lék
við opnun sýningarinnar í Gerðu-
bergi. Auk nemenda þess skóla
leika í henni börn úr Breiðagerðis-
og Hvassaleitisskóla. Ljósmyndari
okkar smellti mynd af fjórum telp-
um sem leika á klarinett: Halldóru
Ósk Hallgrímsdóttur, Brynhildi Að-
alsteinsdóttur og Brynju Björk
Baldursdóttur úr 5.K í Hvassaleitis-
skóla - og Elvu Dröfn Adolfsdóttur
úr Laugarnesskóla.
Telpurnar í Hvassaleitisskóla fá
kennslu á klarinett tvo daga í viku
þar í skólanum og fara á æfingar
með lúðrasveitinni í Laugarnes-
skóla tvisvar í viku.
Frá setningu listahátíbar æskunnar. Ljósm.: Odd Stefán
sýndu þrjú af þessum leikverkum,
Þögnina sem hvarf, Hvað gera full-
orðnir og kabarett. Tólf krakkar
léku í Þögninni sem hvarf. Það er
um stúlku sem fer að leita að
þögninni sem móðir hennar tap-
aði! Verkið höfðar bæði til samtím-
ans og ævintýraheima. Ymislegt ó-
vænt verður á vegi stúlkunnar, álf-
ar, dýr og fyrirbrigði úr náttúrunni,
og hún verður að leysa þrautir til
þess að komast til nornarinnar sem
stal þögninni. Sigurður Lyngdal
samdi leikritið og er leikstjóri.
Krakkarnir sögðu að mamman
væri tákn fyrir fullorðið fólk. Raun-
ar hlustuðu mæður betur á þau en
aðrir. En kennarar hleyptu þeim lít-
ið að ...
Tíu krakkar í Vogaskóla sömdu
og fluttu leikritið, Það gera þetta
allir aðrir. Það fjallar um unglinga
og vímuefni. Krakkarnir vildu
semja leikrit sem hefði gildi í for-
varnarstarfi gegn fíkniefnum. Þeir
sögðu að þeim fyndist óhugnanlegt
að sjá hvernig færi fyrir sumum
þeirra sem notuðu slík efni.
I leikritinu segir frá tveim systr-
um sem ánetjast fíkniefnum. Þær
hafa ekki ætlað sér að nota þau en
leiðast út í það eftir fyrirmynd ann-
arra og vegna þess að þær hafa lít-
inn stuðning af uppeldi. Allt fer þó
betur en á horfðist af því að þær
styðja hvor aðra.
Myndlist 09 lúðroþyfur
í Gerðubergi var myndlistarsýning
reykvískrar æsku. Þar var til að
mynda líflegt málverk af Reykjavík
eftir nemendur úr Öskjuhlíðar-
skóla. Eins og þið sjáið breiðir sól-
in geisla sína yfir fólkið, húsin,
hitaveitugeymana og glerhvolfið
ofan á þeim, Perluna.
Myndmennt 09 leiklist
Halldóra Ósk hefur lært á klar-
inettu í tvo vetur og byrjaði nú í
haust í lúðrasveitinni. Hún segir að
sveitin hafi leikið nokkrum sinnum
opinberlega í vetur.
- Hvar fannst þér skemmtilegast að
koma fram?
„Mér fannst skemmtilegast þegar
viö fórum að Sólheimum í Gríms-
nesi."
- Hefur þú fengist við aðrar list-
greinar?
„Ég var í jassballett. Mér finnst
HaHdóra Ósk, Brynhildur, Brynja Björk og Blva Dröfn. - Lúbrasveit Laugarnes
skóla lék vib opnun myndlistarsýningar í Gerbubergi. Ljósm. Odd Stefán
Æskan 5