Æskan - 01.04.1991, Qupperneq 14
rJVIér finnst frumskilyrði
oi hofa 900100 of þessu"
Ræff við Péfur Guðmundsson ofreksmonn í kúluvorpi:
Pétur Guðmundsson
setti íslandsmet í kúlu-
varpi innanhúss 3. nóv-
ember í fyrra - á móti
sem fram fór í hléi
kraftajötna-sýningar í
Reiðhöllinni. Ekki leið
nema vika þar til hann
bætti einnig ágætt ís-
landsmet Hreins Hall-
dórssonar í kúluvarpi
utanhúss. Hann varp-
aði kúlunni 21.26 m - á
síðasta móti ársins.
Með þeim árangri,
sem Pétur náði í fyrra,
komst hann í röð
fremstu kúluvarpara
heims. Hann staðfesti
það á heimsmeistara-
keppninni innanhúss í
Sevilla í mars sl. en þar
varð hann í fjórða sæti.
Pé.tur hefur stundað íþróttir frá
bamæsku. Hann fæddist í Reykja-
vík 9.mars 1962 og ólst þar upp til
tíu ára aldurs. Á þeim tíma lék
hann knattspyrnu með Fylki í Ár-
bæjarhverfi. Hann fluttist með
foreldrum sínum að bænum
Tungu í Gaulverjabæjarhreppi
1982. Frjálsar íþróttir voru mikið
stundaðar af ungu fólki í hreppn-
um og Pétur tók fljótlega þátt í
keppni í ýmsum greinum.
„Einhvern tíma keppti ég meira
að segja í 1500 m hlaupi," segir
hann og brosir breitt. „Það reynd-
ist ekki heppileg grein fyrir mig.
í sveitinni var mikill áhugi á
frjálsum íþróttum. Ein fjölskylda
þar var sérstaklega dugleg að ýta
undir áhugann og ók iðulega með
okkur á mót. Keppni á milli ung-
mennafélagsins í Gaulverjabæjar-
hreppi, Samhygðar, og Vöku í Vill-
ingaholtshreppi er elsta frjáls-
íþróttamót landsins. Mér tókst að
sigra á því móti strax og ég byrjaði
að kasta kúlunni, 13-14 ára. Það var
mjög hvetjandi og rak mig áfram."
Hifti á góða grein
„Ég reyndi mig í flestum greinum,
bæði í innanfélagsmótum og hér-
aðskeppni. Samhygð er í HSK, Hér-
aðssambandinu Skarphéðni, en það
nær yfir Árnes- og Rangárvallasýsl-
ur. Ég keppti á landsmóti Ung-
mennafélags íslands 1978 - þegar
ég var 16 ára - í stangarstökki! Ég
var ekki farinn að kasta nægilega
langt þá til að komast í keppni í
kúluvarpi. En 1981, á Landsmót-
inu sem fram fór á Akureyri, varð
ég þriðji í kúluvarpi, kastaði 14.40
m. Það ár komst ég í unglinga-
landsliðið. 1982 varð ég fyrst ís-
landsmeistari. 16.17 m nægðu til
þess."
- Fannst þér erfitt að velja milli
greina þegar þú snerir þér af al-
vöru að kúluvarpinu?
„Nei, það kom af sjálfu sér. Ég
held að ég hafi hitt á nokkuð góða
grein fyrir mig. Þetta lá vel fyrir
mér. Ég er stórvaxinn eins og fólk
í mínum ættum og á auðvelt með
að styrkja mig. En ég var meira að
1 4 Æskan