Æskan - 01.04.1991, Qupperneq 16
methafi í tugþraut,
hvatt mig ákaft. Það
er mjög gott að æfa
þar.
Tvo daga í viku eru
tækniæfingar, þá
hoppa ég líka og
hleyp á spretti.
Kúluvarp er í raun-
inni mikil „tækni-
grein". Maður styrk-
ir sig með lyfting-
um og öðru, lyftir
210 kg á bekk - í
keppninni þarf að
nýta styrkinn til
þess eins að kasta
kúlunni sem er
einungis sjö kíló
að þyngd.
Aætíunin er
ekki „fastnegld".
Ég hef alltaf æft eftir
tilfinningu. Hve mikið ég tek á fer
eftir því hve vel ég er á mig kom-
inn. Mér finnst algjört frumskil-
yrði að hafa gaman af þessu, ann-
ars þola menn ekki álagið. Það er
nauðsynlegt að vera kappsamur og
hafa metnað en slæmt að vænta of
mikils."
- Hverjir hafa leiðbeint þér?
„Ég hef fengið ráðleggingar frá
mörgum. Af þeim nefni ég helst
Erlend Valdimarsson og Stefán fó-
hannsson. En ég haga æfingum
eftir mínu höfði og móta minn
eigin stíl.
Ég æfi núna með Andrési bróður
mínum. Það er mjög gott að vera
tveir saman við æfingar. Þá hvetur
hvor annan. Við eigurn líka vel
saman, bræðurnir. Andrés er 26
ára. Hann hefur kastað 17.94 og er
í mikilli framför. Á íþróttahátíð-
inni í fyrra vorum við í tveimur
efstu sætunum í landskeppni ís-
lands, Skotlands og írlands. Við
stefnum að því að verða það oft-
ar!"
- Áttu fleiri systkini sem stunda
íþróttir?
„Systir mín, 14 ára, æfir glímu.
Hún er best í sínum aldursflokki.
til að styrkja sig. Ég hef leitað til
nokkurra, mætt skilningi og feng-
ið stuðning. Apple-tölvuumboðið
og Eimskipafélag íslands hafa
stutt mig all-rausnarlega ásarnt
öðrum fyrirtækjum.
Auk vinnutaps fylgir þessu ým-
iss konar kostnaður. Til að mynda
slít ég til agna einum æfingaskóm
á mánuði. Þetta eru dýrir skór,
kosta urn tíu þúsund krónur. Ég
var svo heppinn að kornast á
samning við Nike-fyrirtækið. Það
útvegar mér allan búnað til æfinga
og keppni."
Hef alltof æft
eftir tilfinningu
- Hvernig hagar þú æfingum?
„Ég æfi lyftingar fjórum sinnurn
í viku. Tvær æfinganna eru þung-
ar, hinar tvær léttar. Ég lyfti lóð-
um í Orkulind. Þar hefur Stefán
Hallgrímsson, fyrrverandi Islands-
Ég held að hún hafi hæfileika til
að verða afrekskona í íþróttum.
Ég á einn bróður sem er eldri en
ég og tvo yngri. Andrés er sá eini
sem æfir íþróttir núna."
Meðan við Pétur höfum rætt
saman hefur lítil telpa setið í
fangi hans. Nú baslar hún við að
stíga fyrstu skrefin og setur per-
sónulegt met í skrefafjölda! Því
liggur beint við að spyrja Pétur
um fjölskylduna ...
„Kona mín heitir Elísabet Helga
Pálmadóttir (... Gíslasonar, for-
manns UMFÍ). Við kynntumst
1984, líklega eftir leik í blaki, og
gengum í hjónaband í október á
því ári. Ég harmaði á sínum tíma
að verða hætta í skólanum í Ala-
bama vegna meiðsla. Nú má ég
vera þakklátur fyrir það - annars
hefðum við kona mín sjálfsagt
ekki kynnst!
Við eigum þrjú börn, Karen Ósk
5 ára, Pálma 4 ára og Lindu Björk
10 mánaða."
- Þú nefndir blak ... Hefur þú
stundað það líka?
„Já, ég hef lengi haft mjög gam-
an af að leika blak. Ég hef keppt
með Samhygð og liði HSK. Það
hefur unnið blakkeppni á lands-
móturn UMFÍ þrisvar sinnum. Ég
var með í tvö fyrri skiptin. Við
æfðum vel fyrstu tvö árin en lítið
eftir það. Nú hefur það lið verið
leyst upp - en ég var síðast í gær-
kvöldi að keppa með Samhygð í
héraðsmóti HSK. Við unnum gull
í þetta skipti.
Það er ágæt snerpuþjálfun að
stunda blak. í því er mikið stokkið
og boltanum skellt („smash"). Það
reynir bæði á fætur og handleggi.
Þegar knettinum er skellt yfir til
andstæðinganna eftir stökk við
netið fer um mann áreynslubylgja
allt frá tám og fram í fingurgóma!
Þannig er það líka í kúluvarpinu."
- Hafa aðrar íþróttagreinar „náð
tökum á þér"?
„Nei, ég hef gætt þess að fara
ekki á skíði eða byrja á neinu sem
gæti togað mig til sín!"
1 d» Æskan