Æskan - 01.04.1991, Side 17
ÞóHi dálítið
varið í kýrnar
- Segðu mér eitthvað úr sveitinni...
„Ég vann öll algeng sveitastörf á
þeim árum. Pabbi stundaði lengst
af sjómennsku og við strákarnir
sáum um búið. Það var kúabú.
Við vorum með 35 kýr en á bæn-
um voru allar skepnur. Mér fannst
gaman í heyskapnum á sumrin -
en ekki beinlínis gaman að
mjólka. Samt þótti mér dálítið
varið í kýrnar. Þær eru ekki svo
vitlausar. Sérhver þeirra hefur
sinn „karakter", sína skapgerð og
einkenni - raunar líka hár-
greiðslu! Hjá þeim er ákveðinn
virðingarstigi, til dæmis fékk sú
elsta alltaf besta blettinn þegar
þær bitu fóðurkálið.
Við áttum nokkra reiðhesta og
fórum reglulega á hestbak, oft nið-
ur í fjöru. Jörðin liggur að sjó og
þaðan var útræði í gamla daga. Þar
voru möstur, vörður og staurar
sem höfðu vísað sjómönnum leið.
Þegar horft var eftir þessum merkj-
um sást lygna á öldugangnum í
ósnum. Volalækur rennur þarna til
sjávar og er eiginlega lítil á."
- Hver eru helstu mót sem þú
hefur tekió þátt í erlendis?
„Af þeim má nefna Ólympíu-
leikana 1988. Það var góð reynsla
Árangur Péturs
Guðmundssonar
í kúluvarpi
1977: 11.27 1978: 13.01
1979: 13.26 1980: 13.96
1981: 14.40 1982: 16.20
1983: 16.89 1984: 15.44
1985: 16.40 1986: 18.28
1987: 19.31 1988: 20.03
1989: 19.79 1990: 21.26
1991: ??.??
að sjá hvernig allt fer
fram á slíkum mót-
um. Ég varð í 14.
sæti, kastaði 19.21 m
- en besti árangur
minn á því ári var
20.03.
Ég tók þátt í Evr-
ópumeistaramótinu
í fyrra. Ég komst í
tólf manna úrslit -
eins og Einar í spjót-
kasti og Vésteinn i
kringlukasti. Eng-
inn okkar komst í
átta manna úrslit.
í mars fór fram
heimsmeistara-
keppnin innanhúss
í Sevilla á Spáni.
Þar varð ég fjórði.
Ég má vel við
þann árangur una.
Kasthringurinn
var stamur. Það
kemur sér illa fyr-
ir þá sem nota snúningsstílinn.
Það er alltaf tilviljunum háð
hvernig aðstæður eru á keppnis-
stað. Því er árangur alltaf að
nokkru leyti kominn undir
heppni."
Heimsmeistaramótió
er aðalviðburðurinn
- Frain undan eru mörg mót...
„Já, nú verð ég að fara að hrista
af mér þessa flensu sem hefur
hrjáð mig í rúma viltu! Ég keppi á
Ólympíuleikum smáþjóða í And-
orra í maí. Vonandi kemst ég líka
á mót í Granada - en kúlu-
varpskeppnin verður 25. maí á
báðum mótunum. Ég er að reyna
að fá henni flýtt á mótinu í And-
orra.
Ég stefni að keppni í sænskri
mótakeðju í sumar, alls fimm
„Grand Prix"-mótum, lílca á
Bislet-leikunum í Noregi og mót-
um í Sviss og Austurríld. Ég keppi
með landsliðinu í frjálsum íþrótt-
„Þab er naubsynlegt ab vera
kappsamur og hafa metnab en
slæmt ab vænta of mikils"
um í Skotlandi og Portúgal. Aðal-
viðburðurinn verður heimsmeist-
aramótið í Japan 24. ágúst til 4.
september. Og þá er farið að styttast
í Ólympíuleiltana á Spáni 1992 ..."
- Venjan er að biðja afreksmenn
um ráðleggingar til barna og ung-
linga sem eru að byrja að iðka í-
þróttir. Hvað eiga þau að leggja á-
herslu á?
„Best er að byrja á því að reyna
sig í sem flestum íþróttagreinum
til þess að finna þá réttu - og þá
sem manni finnst mest gaman að.
Hafa verður í huga að í ltnatt-
íþróttum er það samvinna liðsins
sem sldlar árangri en í frjálsum
íþróttum byggist árangur á ein-
staklingnum sjálfum. Og því má
eldd gleyma að æfingin skapar
meistarann."
Æskan 1 7