Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1991, Side 25

Æskan - 01.04.1991, Side 25
sögulegri fjolloferd Iðunni Steinsdóftur ar hafa sloppið óséðir úr mínu umdæmi áður en þið komust á legg, segir hann. - Þetta hefur verið paradís fyr- ir þjófa, segir Hrói og hlær. - Þið heyrið frá mér síðar, seg- ir Bjarni og klappar þeim í bak og fyrir. Skeggi og Snúður fara upp í bílinn sinn. Þeir ætla að fara með til Furuvíkur og skila Víð- bláni. - Farvel! kallar Hrói til Snúðs þegar þeir aka af stað. Lára og faðir hennar fara með þeim í jeppanum hans Fúsa. Jeppinn er svo stór að það er nóg rými fyrir alla. Það er mikið rætt og rabbað á leiðinni. Lára er orðin vel hress eftir allan svefninn og segist ekki vera með neinn verk í höfð- inu lengur. - Þið verðið að fara til Spánar eins og þið voruð búin að ætla yklcur, segir hún við pabba sinn. - Við sjáum til. Það skiptir mestu að þú ert fundin, segir hann. - Ég veit að það var ljótt af mér að strjúka. Mér leiddist bara í Mýnesi af því að það voru engir krakkar þar. Ég ætlaði að fara heim til Lillu vinkonu minnar og fá að gista þar, segir Lára. - Þú mátt vera heima hjá mér ef pabbi þinn og mamma fara í frí, segir Lóa. - Er það? spyr Lára spennt. - Þó það nú væri. Við höfum bara gaman af að hafa þig, segir Þórir. - Má ég það pabbi? spyr Lára. - Kannski við samþykkjum það. En við verðum samt að tala um það við mömmu þína. Svo þarf líka að láta lækni líta á þig, segir pabbi hennar. - Uss það er ekkert að mér, svarar Lára. - Útilegan varð ekki eins löng og við gerðum ráð fyrir, segir Fúsi við börnin. - Nei, en hún var góð samt, segir Búi. - Við töpuðum að vísu tjald- inu, segir Hrói. - Og öllu sem í því var, segir Búi. - Við vorum þó búin að borða matinn, segir Hrói. - Þið hélduð lífi og eruð ó- meidd. Við getum alltaf keypt nýtt tjald og dót til útilegu, segir Þórir. Þau aka alltaf niður í móti og eru nú farin að sjá fjöllin í sveit- inni sinni. Hrói réttir úr sér. - Ég er ægilega svangur, segir hann. - Það er ágætt. Nú förum við að nálgast kakóið hjá ömmu, segir Búi. Og innan skamms aka þau niður síðustu brekkuna og sjá hópinn sem stendur utan við húsið heima hjá Búa. Allir sem þau þekkja eru þar og Óli og Dóri, litlu bræður Hróa, fremstir í flokki. Þau stíga út úr bílnum. Ótal hendur taka á móti þeim og eins og hetjur dagsins ganga þau inn í húsið. Ilmur af nýlöguðu kakói berst að vitum þeirra í bylgjum. Og allt í einu eru Ted og Hera, Snúður og Skeggi og meira að segja sjálfur Víðbláinn gleymd. Ekkert kemst að í huga þeirra nema þessi ilmur sem liggur í loftinu og kitlar á þeim nefið og kokið og heldur áfram að kitla og kitla alveg niður í maga. Sögulok. Nýlega hlaut höfundur þessarar sögu, Iðunn Steinsdóttir, íslensku barnabókaverðlaunin fyrir söguna Gegnum þyrnigerðið. Æskan óskar henni hjartanlega til hamingju. Æskan 25

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.