Æskan - 01.04.1991, Blaðsíða 49
Ljóðaskrá
Dovídhúsi
eftir Döðvar Guðlaugsson
Hann Dodda litla í Davíðshúsi
dreymdi um skip og sjó;
af dorginu á bryggju-hausnum
fékk hann aldrei nóg,
og þegar hann úr söltum sævi
silfruð kóðin dró
menn sögðu: Þessi Þórður hérna,
þvílík aflakló!
Langabryggja löngum helsti
leikvangur hans er;
þangað Dodda-drengurinn
á degi hverjum fer.
Um farmennsku og fiskveiðar
svo fróður er nú hann,
að jafnt á trillu, skútu og skipi
skil á flestu kann.
Og hver veit nema Dodda litla
seinna sjáum við
sem skipstjóra á skuttogara
skunda á fengsæl mið
og standast bæði stinningskalda,
storm og páskahret
og bæði í Húll og Bremerhaven
bæta öll sölumet.
Og frægðarorð hans flýgur víða
um Frónið, trúi ég,
og álit fólks mun yfirleitt
á einn og sama veg,
og þeir sem best til þelckja segja
að þrekraun hverri í
sé dugnaðurinn dæmalaus
og dirfskan eftir því.
Það dylst ei þeim sem drenginn þekkja
að Doddi kemst til manns.
Og Klara litla á Klifinu
er konuefnið hans.
Því setji hann óska-æviferil
upp á draumasvið
þá skipar Klara alltaf annað
aðal-hlutverkið.
Og máske seinna í sortabyl
um svarralega dröfn
hann Fossi eða Felli stýri
farsællega í höfn.
Eg kem í svipinn ekki auga
á efni meiri en hann
í skjótráðan og skörulegan
skipstjórnunarmann.
Æskan 53