Æskan - 01.10.1991, Blaðsíða 15
Nanna og Guö-
rún Erla meö
nokkra dauöa
lunda.
alls ekkert á sig fá þó a& haug-
rigndi allan tímann me&an á æf-
ingunni stóð. Þeir vissu sem var
að þaö er sjaldan spurt að veðri
þegar knattspyrnuleikir fara fram
og því verður líka að æfa sig við
erfiðar aðstæður. Þeir kváðust
Vestmanna-
eyjabœr
flestir ætla að verða atvinnufót-
boltamenn í framtíðinni. Þeir
minntust þess áreiðanlega að á-
trúnaðargoð þeirra, Vestmanna-
eyingurinn Asgeir Sigurvinsson,
gat látið drauminn um að leika
með heimsfrægum liðum ræt-
ast. Af hverju ekki þeir líka?
Eftir að hafa fylgst með knatt-
spyrnuæfingunni um stund héld-
um við niður í Spröngu, eins og
það er nefnt, í von um að hitta
þar fyrir krakka í „þjóðaríþrótt"
Eyjaæskunnar, sprangi. Jú, viti
menn! Þarna voru tveir ungling-
ar, strákur og stelpa, að sveifla
sér í vaði á milli klettasyllna og
gerðu það fimlega.
Ungmennin gerðu hlé á leikn-
um stutta stund til að spjalla við
tíðindamann Æskunnar. Þau
sögðust vera ofan af landi en
ekki úr Eyjum. Þetta voru þau
Valgeir Scheving Ævarsson, 11
ára Reykvíkingur, og Áslaug Sig-
urðardóttir, 14 ára frænka hans,
búsett í Hafnarfirði. Þau kváðust
spranga í hvert skipti sem þau
kæmu til Eyja og væri það ó-
missandi liður í heimsókninni.
Valgeir hafði komið tólf sinnum
áður og oftast til að taka þátt í
þjóðhátíðinni. Áslaug hafði líka
komið margsinnis í sama til-
gangi.
Lundinn bragbvondur
Fimm börn á aldrinum 2ja-6 ára
voru við kofasmíðar í vesturhluta
bæjarins. Þau voru of ung til að
spranga en þau voru þeim mun
kappsfyllri við smíðarnar. Eins og
sjá má á myndinni hér á síðunni
þá voru þau langt komin með
kofann og elsta barnið, sem
hafði orð fyrir hópnum, tók
fram, líklega svo að það færi ekki
á milli mála, að ætlunin væri að
hafa þak á kofanum. Það yrði
bara ekki smíðað fyrr en daginn
eftir. Á einn gaflinn var búið að
negla upp skilti sem á stóð: Ný
málað!
„Við ákváðum að setja það
upp strax svo að það væri búið
því að við ætlum að mála kof-
ann mjög fljótlega," sagði for-
mælandi hópsins.
Blaðamabur fékk að taka
myndir af krökkunum en hélt svo