Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1991, Síða 53

Æskan - 01.10.1991, Síða 53
Ðagur frímerkisins 1991 Þab eru í raun tvær sérstakar frímerkjútgáfur sem komu út á degi frímerkisins í ár. Sú fyrri fjallar að mestu um sigl- ingar póstskipa. Árið 1 776, hinn 1 3. maí, var gefin út konungleg til- skipun um póstferðir á Is- landi af Kristjáni VII. Dana- konungi. Reglubundnar póstsamgöngur um Island og svo áfram til Danmerkur munu fyrst og fremst hafa verið hugsaðar til þess að greiba fyrir skiptum dönsku stjórnarinnar í Kaupmanna- höfn við embættismenn sfna hér á landi. Talið er ab reglulegar ferðir póstsins milli íslands og Danmerkur hafi byrjað tveim árum síðar eða 1 778. Var farin ein ferð á ári ab vorlagi en aörar póstferðir urbu með skipum kaupmanna svo sem áður hafði verið. Póst- og símamálastofn- unin gaf út á Degi frímerkis- ins, 9. október 1991, smáörk með myndefni sem sýnir fjögur skip. Meb tveimur frí- merkjanna er minnst póst- skipanna, sem sigldu til ís- lands á öldinni, sem leið, en hin tvö eru af þekktustu far- þega- og flutningaskipum ís- iendinga á þessari öld og eiga sér mjög merkan feril í siglingasögu íslendinga. Þau skip, sem hér hafa orðið fyrir valinu, „Sölöven," „Arcturus," „Gullfoss I." og „Esja II", eiga þab sameigin- legt að hafa öll komið vib sögu í póst-, farþega- og vöruflutningum milli íslands og annarra landa um lengri eða skemmri tíma frá 1 852- 1 969. Þau eru, ef svo má að orði komast, hvert um sig fulltrúi síns tímaskeiðs, frá ó- fullbúnum seglskipum gamla tímans til vélknúinna farkosta 20. aldarinnar. Sölöven var seglskip, tví- möstrub skonnorta, smíðuð úr eik 1 840-1 841, um 1 08 brt. ab stærð og þótti vel vandaö til smíðinnar. Það var síðasta póstseglskipið f íslands-siglingum og sigldi frá 1 852 þar til það fórst í aftaka suövestan veðri hinn 27. nóvember 1857 meb allri áhöfn og farþegum undir Svörtuloftum við Snæ- fellsnes. Arcturus var gufuskip með seglbúnabi og var í íslands- siglingum 1858 til 1868 og aftur 1 876 til 1 882. Það var smíðað í Skotlandi en komst síðar í eigu Sameinaða gufu- skipafélagsins danska (DFDS). Gullfoss (I) hafði 1200 ha. gufuvél og var fyrsta skip Eimskipafélags íslands sem stofnab var 1 7. janúar 1914 Hann kom nýsmíðaður til landsins 16. apríl 1915. Gullfoss var smíðaður í Kaupmannahöfn og var fyrsta íslenska skipið með frystirými. Skipið hafði rúm fyrir 74 farþega á tveimur farrýmum og ganghraði þess var 11 sjómílur á klst. Gullfoss var flaggskip ís- lenska kaupskipaflotans í aldarfjórðung og er koma hans einn merkasti atburbur í íslenskri samgöngusögu á þessari öld. Vib hernám Danmerkur í heimsstyrjöld- inni síðari, 9. apríl 1940, var skipið kyrrsett. Eimskipafé- lagið seldi skipið 1947. Esja (II) var knúin tveim 1250 ha. diesel-vélum. Hún var smíðuð í Álaborg í Dan- mörku 1939 til strandferða fyrir Skipaútgerð ríkisins sem var formlega stofnuð í árslok 1 929. Skipið var rétt árs- gamalt þegar þab var sent til Norður-Finnlands (Petsamo) haustib 1940 ab sækja þangað 258 íslendinga sem orðib höfðu innlyksa á Norb- urlöndunum vegna ófriðar- ins. Fimm árum síðar, í júní 1945, var Esja fyrsta íslenska skipið sem sigldi til Evrópu ab styrjöld lokinni og flutti til íslands yfir 300 farþega, flest íslendinga sem höfðu lokast inni í Evrópu á styrjaidarár- unum. Farþegarými skipsins var fyrir 148 manns á tveim farrýmum. Síðari útgáfan minnist svo þess ab 1 00 ár eru síöan vib tókum að mennta hér heima menn þá er sigla skulu skip- um, hvort sem þau ganga fyrir vél eba vindi. Það er því 100 ára afmæli Sjómanna- skólans sem er minnst á þeirri útgáfu. Myndefnið er núverandi sjómannaskóli. Æ S K A N 5 7

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.