Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 7
þorskur fljúgandi. Hann fór að
skamma hundana fyrir ab hætta
að syngja en steinþagnaði þegar
hann sá Önnu.
„Fylgdu mér!" sagði hann síð-
an og benti Önnu á ab koma
með sér.
Anna elti fiskinn sem sveif á
undan henni og brátt komu þau
ab litlum bæ þar sem hundar
voru alls staðar og unnu öll störf
sem menn eru vanir að vinna.
Þarna voru verslunarhundar, lög-
regluhundar og tíkur meb litla
hvolpa í „hvolpavögnum".
Fiskurinn fylgdi Önnu heim að
fallegu húsi.
„Hér á drottningin heima,"
sagði hann. „Hún vill hitta alla ó-
kunnuga sem koma til bæjarins."
Síban kvaddi þorskurinn og
Anna gekk inn í húsið. Þjónustu-
stúlka tók þar á móti henni og
vísaði henni til drottningarinnar.
Drottningin tók Önnu tveim
höndum en Anna vissi ekki hvað
hún átti að gera svo ab hún
hneigði sig tvisvar og settist svo á
stól fyrirframan drottninguna.
Anna þagði í fyrstu en svo
sagði hún:
„Hvers vegna átti ég að koma
til þín?"
Þá sagbi drottningin:
„Ég ætla að bjóða þér í mat."
Rétt í því komu þrír þjónar
með mikinn mat. Fyrst kom
þjónn með kjötbollur, sósu og
kartöflur. Næst kom þjónn meb
fisk. Og sá þribji kom meb ís.
„Jæja, borðaöu nú eins mikið
og þú getur," sagbi drottningin.
Þegar Anna var búin að borða
fór drottningin meb hana að
stórum spegli og sagði henni að
fara inn í hann. Þegar hún ætlaði
ab reyna það vaknaði hún í garb-
inum heima."
„Þetta er alveg ágæt saga,"
sagbi mamma Sigrúnar. „En eig-
um við ekki ab fara ab fá okkur
að boröa. Svo skal ég laga staf-
setningarvillurnar eftir mat."
„Jú, það skulum við gera,"
sagbi Sigrún.
■m
0.
Höfundur verðlaunasögunnar heitir
Stella Christensen. Hún er tólf ára - en
var ellefu þegar hún sendi söguna í
samkeppni Æskunnar, Flugleiða og
Ríkisútvarpsins.
Ég spurði hana fyrst hvort hún hefði
samið margar sögur...
„Nei, reyndar ekki. Ég var líka alveg
hissa þegar ég frétti að ég hefði unnið í
keppninni.“
- Hvað gerir þú helst í tómstund-
um?
„Ég er í kór Barnaskóla Akureyrar.
Mér finnst mjög gaman að syngja. Ef til
vill byrja ég bráðum í kirkjukór. Ég var í
fimleikum en er nýlega hætt. Ég fer líka
oft á skíði.“
- Hvernig tónlist þykir þér skemmti-
legust?
„Alls konar músík - ef mér finnst að
hún sé vel gerð og flutt.“
- Hverjir eru eftirlætis söngvarar þínir?
„Whitney Houston og Arnar og
Rúnar, The Boys.“
- Hefur þú ferðast víða?
„Við fjölskyldan höfum nokkrum
sinnum farið hringveginn. Þá höfum
við verið mánuð á leiðinni og oftast
tjaldað. Við höfum líka oft heimsótt
skyldfólk okkar í Danmörku og dvalist
hjá ömmu, móður pabba, í Vanlose.
Það er alveg við Kaupmannahöfn.
Pabbi er danskur en mamma ís-
lensk. Þau kynntust þegar hún var aó
vinna í Danmörku."
- Áttu mörg frændsystkini þar?
„Já, nokkur. Pabbi á þrjú systkini.
En ekkert af þörnum þeirra er á aldur
við mig. Þau eru ýmist yngri eða eldri
en ég.“
- Hefur þú farið til fleiri landa í Evr-
ópu?
„Já, við höfum farið frá Danmörku til
Svíþjóðar og Þýskalands. En ég hef
ekki komið til Hamborgar. Mig langar
þangað, þess vegna tók ég þátt í
samkeppninni."
- Hvað hefur þér þótt skemmtileg-
ast á þessum ferðalögum?
„Að fara í Tívolíið í Kaupmannahöfn
og leika mér þar í skotbökkunum og
svífa í tæki sem heitir Fljúgandi svan-
ir.“
- Hverjar eru eftirlætis-námsgreinar
þínar?
„Myndmennt og móðurmál."
- Lestu mikið?
„Já, frekar mikið - helst ævintýra-
legar og dularfullar sögur, til dæmis
bækur eftir Enid Blyton. Ég hef lesið
þær allar.“
- Hefur þú starfað í einhverju félagi?
„Nei, en ég og vinkona mín ætlum
kannski að byrja í barnastúku. Það
kom maður í skólann til okkar og var
að kynna hana. Mér leist vel á það.“
Æskan óskar Stellu til hamingju og
vonar að hún eigi eftir að skemmta sér
vel í ferðinni til Hamborgar - ásamt
Hönnu Gísladóttur, sem hlaut aðal-
vinninginn í getrauninni, og góðri leið-
sögukonu Flugleiða.
Stella Christensen
Æ S K A N 7