Æskan - 01.01.1994, Qupperneq 20
AÐDAENDUM 5VARAD
FALLEGASTI STAÐURINN?
HAFNARFJÖRÐUR
BERC5VEINN
BERC5VEIN5SON
MARKVÖRÐUR LANDSLIÐSINS
í HANDKNATTLEIK.
Hvar og hvenær ertu fæddur?
Hvar ólstu upp?
í Reykjavík 25. janúar 1968. - í
Hafnarfirði.
Hvenær byrjaðir þú að æfa
handknattleik?
Þegar ég var átta ára.
Hefur þú alltaf æft og leikið
sem markvörður? Af hverju
valdir þú þá stöðu.
Já, ég hef alltaf verið í marki. Ég
byrjaði í frímínútum í skólanum og
fór svo að æfa.
Hefur þú stundað aðrar grein-
ar íþrótta?
Já, knattspyrnu.
Með hvaða félögum hefur þú
leikið?
Ég var með rauðklæddu liði í
Hafnarfirði til 15 ára aldurs (Hauk-
um) en fór þá í FH.
Hefur þú unnið til meistaratitla
með liðunum?
Ég hef fimm sinnum orðið ís-
landsmeistari: Einu sinni í 3. flokki
FH, tvisvar í 2. flokki og þá einnig
bikarmeistari; tvívegis með meist-
araflokki (1990 og 1992). Bikar-
meistari 1992.
Hve marga landsleiki hefur þú
háð?
45 unglingalandsleiki og 80 A-
landsleiki.
Hvenær þótti þér sárast að
tapa?
í bikarúrslitaleik 1988 og leikn-
um við Val í fyrra um íslandsmeist-
aratitilinn.
Skot hvaða leikmanns finnst
þér erfiðast að verja?
Alexanders Tuskins (Essen).
Gegn hvaða íslensku liði þykir
þér erfiðast að leika?
FH b.
Af hverjum hefur þú lært
mest?
Einari Þorvarðarsyni.
Hver er eftirlætisleikmaður
þinn?
Hans Guðmundsson FH.
Hver eru helstu áhugamál þín
önnur en handknattleikur?
Að leika golf.
í hvaða skólum hefur þú
stundað nám? Hvað starfar þú?
í Iðnskólanum í Reykjavík. - Ég
starfa sem offsetprentari í Prentbæ
í Hafnarfirði.
Ertu kvæntur? Áttu börn?
Ég á unnustu, Gígju H. Eiðsdótt-
ur, og tæplega þriggja mánaða
dóttur, Katrínu Erlu.
Á hvaða leikara hefur þú mest
dálæti?
Robert de Niro.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Piparsteik hjá mömmu á
gamlárskvöld.
Áttu/hefur þú átt dýr? Hvaða
dýr falla þér best?
Ég hef átt kött. Kettir.
Hvaða rithöfund og Ijóðskáld
dáir þú mest?
John Grisham - Sverri Storm-
sker.
Hvaða staður á íslandi þykir
þér fallegastur?
Hafnarfjörður.
Til hvaða landa hefur þú komið?
Færeyja, Danmerkur, Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands, Englands,
Skotlands, Þýskalands, Frakk-
lands, Hollands, Lúxemborgar,
Portúgals, Spánar, Ítalíu, Sviss,
Austurríkis, (Tékkóslóvakíu), Ung-
verjalands, Rúmeníu, (Júgóslavíu)
og Tyrklands.
Hvert langar þig mest til að
ferðast?
Til einhverrar eyju í Karabíska
hafinu.
Hvað metur þú mest í lunderni
og framkomu fólks?
Heiðarleika og hreinskilni.
Hvað kanntu verst við í fari
manna?
Óheiðarleika.
Hver er eftirlætismálsháttur
þinn?
Ekki er allt gull sem glóir.
2 0 Æ S K A N