Æskan - 01.01.1994, Síða 24
UMSÓKN
UM ÞÁTTTÖKU
í NÝSKÖPUNARKEPPNI
1994
UPPFINNINGAR - FORMHÖNNUN
í vetur hefur 8-15 ára nemendum grunnskólans
gefist kostur á að fara á uppfinninga- og formhönnun-
arnámskeið á vegum íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar í samvinnu við Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur og Tækniskóla íslands. Þar er fengist við
að teikna og/eða smíða hluti sem eru ýmist alveg ný
uppfinning eða endurbætur á gömlum hlut.
KEPPNI í NÝSKÖPUN
í vor verður keppni í Nýsköpun 1 (uppfinningar) og
Nýsköpun 2 (útlits og formhönnun). Allir 8-15 ára
nemendur geta tekið þátt í henni.
VIÐURKENNING
Keþþnin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Aliir sem taka þátt í henni fá viðurkenningarskjal.
UMSÓKNIR
Ljósrita má eyðublaðið hér til hliðar. Umsóknar-
eyðublöð og nánari leiðbeiningar er hægt að fá hjá
umsjónarmönnum tómstundastarfs í skólum, smíða-
og teiknikennurum Reykjavíkurskólanna og á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, 101 Reykjavík, sími 621550.
SKILAFRESTUR
Umsóknirnar þurfa að hafa borist fyrir 12. mars
1993. Þær á að senda til Pauls Jóhannssonar, Tækni-
skóla íslands, Höfðabakka 9, 112 Reykjavík - eða
Gísla Þorsteinssonar, Foldaskóla, Logafold 1, 112
Reykjavík.
VERÐLAUNAAFHENDING
23. apríl kl. 14 verða verðlaun afhent I hátíðasal
Ráðhúss Reykjavíkur. Vegleg verðlaun eru í boði.
STELPUR OG STRÁKAR
eru eindregið hvött til að taka þátt í þessari keþpni
og sýna hvað í þeim býr.
Það er alltaf þörf fyrir nýja og endurbætta hluti!
Keppnin er fyrir 8-15 ára börn og unglinga af öllu land-
inu. Hún er á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurum-
dæmis, Tækniskóla íslands og íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkurborgar.
Heiti hlutar:
Setjið x í viðeigandi reit:
□ Upþfinningakeppni
□ Útlits- og formhönnunarkeppni
Hvernig/hvenær varð hugmyndin til?
Lýsing/Örstutt ágrip: (Hvernig á að nota hlutinn/hug-
myndina?)
Uppdráttur fylgí með!
Efniviður. Úr hverju gæti hluturinn verið?
Höfundur/ar:__________________________
Aldur/Bekkur:_________________________
Skóli:________________________________
Heimili:______________________________
Dagsetning:___________________________
2 4 Æ S K A N