Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 42

Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 42
POPPÞfí TTURINN Umsjón: Jens Kr. Guðmundsson ÖÐRUVÍSI POPPSTJÖRNUMYNDIR Umboðsmenn flestra alvöru poppstjarna dreifa til fjölmiðla glæsileg- um og vönduðum Ijósmyndum af þeim. Myndirnar eru réttnefndar glansmyndir. Fyrirsæturnar eru farðaðar, hárið greitt eftir kúnstarinnar reglum og jafnvel litað ef það er talið til bóta o.s.frv. Eftir að myndin hefur verið tekin er hún unnin frekar á tölvuskjá: Tennur eru litaðar hvít- ari, hrukkum og baugum er eytt o.s.frv. Á glansmyndunum er aðeins sýnt fegursta sjónarhornið. T.a.m. er þess gætt að framstæður kjálki (skúffa) Georgs Michaels sjáist ekki eða kónganef Bonniar Raitt. Fyrir bragðið sýnast poppstjörnurnar yfirleitt líta betur út en almenningur. Flér sýnum við poppstjörnurnar við aðrar aðstæður en í Ijósmyndaver- um umboðsskrifstofanna. Og sjá: Þetta eru bara venjulegir menn! James Hetfield gitarleikari og söngvari Metallicu, Gene Simmons bassaleikari Kiss, Bubbi, Bono, söngvari U2 Fyrri hluti áttunda áratugar- ins hefur verið nefndur hnign- unartímabil í sögu rokksins. Stöðnun og þreyta einkenndu það. Áherslan færðist frá mús- íkinni yfir á sjónræna útfærslu. Gleggsta dæmið um þetta er glysrokkið („glamrock"). Glys- rokkið byggði á einföldum rokktöktum, rafmögnuðu gít- arhljóði (,,fössi“) og auðlærð- um, einföldum laglínum. Vegna rafmagnaða gítar- hljóðsins var glysrokkið flokk- að með þungarokki. Ýmsar gamlar poppstjörnur, s.s. Roll- ing Stones, löguðu ímynd sína að glysrokkinu. Glysrokkarar notuðu andlitsfarða og klædd- ust sérhönnuðum glansfatn- aði. Aðstæðurnar mótuðu glysrokkarana. Þess vegna er ástæðulaust að fordæma þá sem tóku þátt í leiknum. Fæstir glysrokkaranna lifðu pönkbyltinguna 76/ 77 af. Helsti fulltrúi glysrokksins, enski söngvarinn Marc Bolan í T. Rex, lést í bílslysi 1977. Það reyndi því ekki á hæfileika hans til að standast pönkbylt- inguna. Þeir glysrokkarar, sem stóðust tímans tönn, voru bandaríski hryllingsrokkarinn Alice Cooper, bandaríska þungarokksveitin Kiss, breski söngvarinn Davíð Bowie og enska rokksveitin Queen. Framhald... Ölíkt flestum glysrokkurum voru liðsmenn Queen mjög færir hljóðfæra- leikarar, lögðu áherslu á fjölbreytta músikstila og vandaðan söng. 4 2 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.