Æskan - 01.01.1994, Blaðsíða 60
Umsjón: Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir.
SEM ORÐ FÁ EKKI LÝST
Gilwell? Hvaö er nú það? Nafnið er
komið frá Gilwellpark í Lundúnum þar
sem fyrstu námskeiðin fyrir fullorðna
skáta voru haldin. Á þessum námskeið-
um er farið yfir alla þætti skátastarfsins.
Gilwell hefur vissan töframátt. Ef þú
hittir fyrir skáta sem lokið hefur Gilwell
námskeiði og spyrð hann hvernig hafi
verið þá færðu nær undantekningalaust
svarið:
„Þetta var stórkostlegt. Þú ættir að
drífa þig á Gilwell!"
Skátar, 18 ára og eldri taka þátt í
námskeiðinu. Það er lokaliður í foringja-
þjálfun BÍS.
Eitt slíkt námskeið var haldið á Úlf-
Ijótsvatni nú í haust og voru þar 27
Gilwell-ungar samankomnir til að nema
skátafræðin. Skátar skipa sér ætíð í
flokka sem síðan mynda sveitir og eins
var gert á þessu námskeiði. Að jafnaði
eru fjórir flokkar, Uglur - Gaukar - Dúfur
- Hrafnar, en Spætur bættust í hópinn
þar sem þetta námskeið var óvenju vel
sótt. Skátarnir dveljast þarna í viku. Vin-
áttan og bræðralagið styrkist mjög þar
sem taka þarf á málum í blíðu jafnt sem
stríðu.
Flokkarnir reisa hver sína tjaldbúð og
kappkosta að gera hana sem fallegasta,
snyrtilegasta, frumlegasta, þægilegasta
og hagnýtasta. Það er nefnilega dálítill
metnaður í skátunum og þeir vinna ætíð
að því að gera allt eins vel og þeir geta.
Á Gilwell er risið árla úr rekkju og
gengið seint til náða. Það eru mörg
störfin sem þarf að vinna og með góðri
samvinnu skátanna. Kvöldvökur eru á
hverju kvöldi, þar sem reynir á leikhæfi-
leikana, og raddböndin óspart þanin.
Gilwell-námskeið er ógleymanlegur
tími. Þar öðlast maður þroska, þekkingu
og eitthvað sem orð fá ekki lýst og hver
og einn geymir innra með sér.
Hvað er þér minnisstæðast frá Gilwell?
Bryndís 90: Kvöldvökurnar og markferðin. Ævintýravika.
Örn 91: Félagsskapurinn. Gilwell er alveg draumur. Kvöldvökurnar. Að
finna skemmtiatriði á 5 mínútum. Rómantíkin.
Halldóra 91: Tjaldbúðavinnan sem öll átti að vinnast á 25. tímanum í sólar-
hringnum. Hvað það var rosalega gaman. Félagsskapurinn.
HVERNIG GERIST
MAÐUR SKÁTI?
Til að gerast skáti þarf maður að
ganga í skátafélag, læra skátalögin,
skátaheitið og kjörorð skáta. Þegar
foringinn telur mann hafa lært undir-
stöðuna er maður tekinn inn í skáta-
hreyfinguna við hátíðlega athöfn.
Skátafélög starfa víða um land.
Upplýsingar um símanúmer þeirra
eru gefnar á skrifstofu Bandalags ís-
lenskra skáta, s. 91-23190.
Hátíðarmessa i Úlfljótsvatnskirkju
Hvert smáatriði skiptir máli
Úr tjaldbúð Hrafna
Setið að snæðingi
Uglur við tjaldbúðavinnu
6 0 Æ S K A N