Æskan - 01.04.1994, Blaðsíða 5
s s
Avarp forseta Islands:
LÝÐVELDIÁ
ÍSLANDI 50 ÁRA
Á fimmtíu ára afmælishátíð lýðveldisins minn-
umst við Islendingar þess hve dýrmætt það er að
vera frjáls þjóð á ættjörð sem forfeður okkar
völdu okkur til búsetu.
Þjóðarvitund okkar er ofin úr þrem þáttum.
Við eigum saman landið okkar ísland, við
eigum saman verðmætt tungumál sem kynslóðir
hafa varðveitt lítt breytt í ellefu aldir, - og við
eigum saman minningar á þessu tungumáli,
sögu þjóðarinnar. Það voru þessir þættir sem
eftir aldalanga sjálfstæðisbaráttu gerðu okkur
kleift að standa einörð saman um fulla sjálf-
stæðisyfirlýsingu og að stofna lýðveldi þann
17. júní 1944-
Einhver dýrmætasta gjöf sem kunn er um heimsbyggðina er lýðræðið. Lýðræðið er gjöf en þó
fer því fjarri að það sé gefið. Þess verður að gæta bæði vandlega og með virðingu sem fjöreggs
mannsandans, - ekki síður en menningarvitundar þjóðarinnar. Lýðræðið felur í sér falslaus sam-
skipti manna þar sem saman eru ofin styrkur og lítillæti. í lýðræðinu er fólgið sjálfstraust til að
mynda sér eigin skoðanir sem hver maður er frjáls til að rækta með sjálfum sér og þá jafnframt
viljanum til að hlýða á skoðanir annarra.
Á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins stöldrum við íslendingar við og minnumst þess
sem að baki er þegar kynslóðirnar á undan okkur, afar okkar og ömmur, nutu ekki, svo öldum
skipti, gjafarinnar góðu, frelsis og lýðræðis. Jafnframt hugum við að framtíðinni og þeirri ábyrgð
sem okkur hefur verið ljúft að taka okkur á herðar, að viðhalda þjóðararfinum, tungunni og
minningunum.
Ég óska æsku íslands heilla um alla framtíð.