Æskan - 01.04.1994, Side 8
HEIMSMEISTARAR!
Sigursteinn Stefánsson og Elísa-
bet Sif Haraldsdóttir geta státað af
(sama sem-) heimsmeistaratitli! Þau
sigruðu í keppni 12-13 ára í suður-
ameriskum dönsum á alþjóðlegu
móti í Blackpool í Englandi i apríl.
Heimsmeistarakeppni er ekki haldin
fyrir þessa aldursflokka en jafnan er
rætt um mótið sem óopinbert
heimsmeistaramót. Meðal kepp-
enda voru lika öll þau pör sem hafa
skarað fram úr undanfarin ár. Þátt-
takendur í mótinu voru geysimargir,
allt að 140 pör í hverjum flokki!
Sigursteinn og Elísabet Sif eru 13
ára (- hann verður 14 [ september) og
hafa dansað saman í tæp fjögur ár.
Þau svifu einnig um gólfið í danshöll-
inni að Svörtutjörn 1992 og 1993 og
eru því orðin hagvön þar! Fyrsta árið
kepptu þau í flokki 11 ára og yngri og
urðu í 4. sæti bæði í suður-amerískum
dönsum (fjórir dansar) og Jive. Þá
komust þau líka í undanúrslit (12 pör) í
sígildum samkvæmisdönsum („Ball-
room“).
1993 kepptu þau í undanúrslitum í
suður-amerísku dönsunum (Cha cha
cha og rúmbu). Það var vel að verið
því að þá var við eldri að etja í flokkn-
um (12-13 ára).
Þessum árangri verður ekki náð
nema æfingar séu stundaðar af kappi
- þó að krakkar séu hæfileikaríkir
eins og þessir nýju „heimsmeistarar".
Sumir eru farnir að læra dans fjögurra
ára ...
„Nei, ég byrjaði ekki fyrr en níu
ára,“ svarar Sigursteinn þegar ég spyr
um þetta.
„Ég var átta ára,“ segir Elísabet Sif.
- í sama dansskóla?
„Ég var fyrsta árið í Dansskóla Sig-
urðar Hákonarsonar en færði mig
síðan til Jóns Þéturs og Köru,“ ansar
Elísabet Sif.
„Ég hef alltaf verið hjá þeim,“ segir
Sigursteinn.
- Hve oft hafið þið æft?
„Fyrstu tvö árin voru hóptímar
8 Æ S K A N
tvisvar í viku, síðar bættust einkatímar
við. Undanfarin tvö ár höfum við verið
tvisvar í hóptímum, tvisvar í einkatím-
um og einu sinni á „keyrsluæfingum" í
viku.“
ÝMIS KONAR KEPPNI
- Er keppt oft á ári?
„Það er keppt þrisvar sinnum um
íslandsmeistaratitla með frjálsri aðferð
og einu sinni í grunnsporum („Basic").
í frjálsu keppninni er keppt annars
vegar í 5+5 dönsum (tveir meistaratitl-
ar) og hins vegartíu dönsum."
- Hvenær fóruð þið að keppa á
þeim mótum?
„Við byrjuðum að keppa í frjálsum
dansi tveimur árum eftir að við fórum
að dansa saman og urðum í öðru sæti
í latneskum og sígildum dönsum.“
- Gekk ykkur vel frá byrjun?
„Já, ágætlega. Fyrst vorum við í 5,-
3. sæti í sígildum dönsum en annað
árið tvisvar í 2. sæti. Við höfum unnið
tíu dansa keppnina tvisvar en 5+5 einu
sinni - og núna í maí urðum við
íslandsmeistarar í keppni í grunn-
sporum (enskur vals og tangó - Cha
cha cha og Jive).“
- Eru margir jafnir eða eigið þið ein-
hverja aðalkeppinauta?
„Það eru margir góðir en Brynjar og
Sigursteinn og Elisabet Sif dansa rúmbu i úrslitakeppninni i hinu óopinbera heimsmeistaramóti i
Blackpool i vor.