Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1994, Page 9

Æskan - 01.04.1994, Page 9
flokki SKSSSS® Með V 12ðÍ3 árf HeTsme/starat/t//' Sesselja í Nýja dansskólanum hafa verið erfiðustu keppinautarnir. Þau hafa stundum unnið okkur.“ - Þið sigruðuð í báðum suður-am- erísku dönsunum í ykkar flokki í Black- pool núna í apríl - og gekk vel í fleiru en því... „Við komumst í undanúrslit, þ.e. 12 para úrslit í öllum latnesku dönsunum fimm í flokki 12-15 ára - og urðum í 5. sæti í sígildum dönsum í flokki 12-13 ára.“ - Ég veit að sóst er eftir góðum dönsurum til að sýna á skemmtunum. Hafió þið oft komið fram? „Já, við höfum dansað ýmist tvö eða með flokki dansara frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Undanfarið hafa margir hringt og beðið okkur að sýna.“ - Hverjir hafa kennt ykkur? „Jón Pétur og Kara og Hinrik Vals- son hafa verið með okkur frá því að við fórum að dansa saman. Erlendir kennarar hafa líka komið hingað nokkrum sinnum og haldið námskeið sem við höfum tekið þátt í.“ GLÆSILEG FÖT - Keppendur í dansi eru alltaf glæsilega klæddir. Eigið þið margs konar fatnað til að keppa í? ANNAÐ EN DANSINN - Hafið þið æft aðrar íþróttir? Sigursteinn: Ég æfi körfuknattleik, var áður í knattspyrnu og handbolta, er dálítið í sundi og oft á skíðum. Elísabet Sif: Ég æfði knattspyrnu og hlaup en er hætt því - nema að skokka. Ég tek stundum þátt í skóla- og víðavangshlaupum. - Þið hafió nógu að sinna í sam- bandi við dansinn - og aðrar íþróttir. Kemur það ekki niður á náminu? „Ef maður skipuleggur tímann vel er hægt að komast yfir þetta allt.“ - í hvaða skólum eruð þið? Hvaða greinar þykir ykkur skemmtilegastar? Sigursteinn: í Hólabrekkuskóla. Danska, enska og leikfimi. Elísabet Sif: Hjallaskóla. Stærð- fræði, enska og leikfimi. - Að lokum: Tekur ekki á að reyna að verja titil? „Jú það er reyndar dálítið erfitt. En viö reynum bara að gera eins vel og við getum. Ekkert má fara úrskeiöis ef keppt er til verðlauna. Það verður að taka því ef eitthvað mistekst - og gera betur næst!“ Sigursteinn: Ég á ein kjólföt fyr- ir sígildu dansana. En ég má ekki keppa í þeim hér heima. Hér eru aðrar reglur en erlendis. Ég á þrjár skyrtur sem ég nota í suð- ur-amerísku dönsunum og tvennar buxur. Elísabet Sif: Ég á þrjá kjóla fyrir latnesku dansana og einn fyrir þá sígildu. - Þið eruð að vaxa. Þarf að fá sér ný föt á hverju ári? Elísabet Sif: Já, og jafnvel fyrir hverja keppni. Yfirleitt er saumað nýtt í hvert sinn. Við fórum í nýjum fötum í keppn- ina í Englandi. Sigursteinn: Ég fæ oftast nýja skyrtu fyrir hverja keppni því að ég stækka svo ört núna. Þetta er enn erfiðara fyrir stelpurnar. - Hvar fáið þið fötin? Elísabet Sif: Lína Björk hefur saumað alla mína kjóla. Sigursteinn: Ingibjörg, sem er saumakona og hönnuður, hefur saumað á mig undanfarið. - Þetta er þá all-kostnaðar- samt... Elísabet Sif: Já, en við seljum yfirleitt kjólana eftir að ég hef notað þá á einu eóa tveimur mótum. - Hafið þið fengið styrki til að taka þátt í „heimsmeistara- mótinu"? „Nei, við við verðum að borga það allt sjálf. En Dans- samband íslands hefur óskað eftir inngöngu í íþróttasam- bandið svo að hægt sé að sækja um styrki. Dans er íþrótt. Við ættum að geta fengið styrki til að keppa á slíkum mótum eins og íþróttafólk." - Fóru margir til Eng- lands núna? „Já, það voru um 180 alls, keppendur, kennarar og foreldrar. 36 pör kepptu í flokki 12-15 ára og nokkur í flokki 11 ára og yngri. Við fórum með þotu sem var tekin á leigu.“ ^ef Sif°g Swrsteinn urðu/5 sætií - um 1 sínum flokki á mótini S'9'ldum dön«- Æ S K A N 9

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.