Æskan - 01.04.1994, Page 11
FORSETI
- FRÁ HRAFNSEYRI í ARNARFIRÐI
Sumum stöðum fylgja munnmæli sem
nánast eru helgisögur. Öll þekkjum við
söguna um öndvegissúlur Ingólfs Arnar-
sonar sem hann varpaði í sjóinn og á-
kvað að byggja sér bæ þar sem þær
bæri að landi. Þannig fól hann forsjóninni
örlög sín. Sú saga var færð í letur þegar
Reykjavík var ein-
stakur sveitabær
og skorti flest sem
ræður úrslitum um
höfuðstað.
Önnur ámóta
helgisaga er bund-
in við Eyri í Arnar-
firði - Hrafnseyri.
Þar segir frá Áni
Rauðfeldi land-
námsmanni sem
var hinn fyrsta vet-
ur ( Dufansdal en
Grelöð kona hans
festi þar ekki yndi
því að henni þótti
þar illa ilmað úr
jörðu. Því keypti
Án land og reisti
bú á Eyri en þar
þótti Grelöðu hun-
angsilmur úr grasi.
Á eyri við sjóinn
utan við tún á Hrafnseyri er örnefnið
Grelutóftir. Þar hafa fundist menjar um
landnámsbæ, veggjasteinar og aska á
ósnortnu landi. Þar hefur landnámsbær-
inn staðið og verið nefndur á eyri. Því
nafni hefur hann haldið þó að hann væri
fluttur upp yfir bakkana háu. Það fellur
vel að munnmælunum að rústir land-
námsbæjarins væru nefndar Grelað-
artóftir sem varð svo Grelutóftir í munni
fólks.
Á sínum tíma varð svo eyrin kennd
við höfðingjann Hrafn Sveinbjarnarson
og kölluð Hrafnseyri til aðgreiningar frá
öðrum eyrum vestra en þær eru býsna
margar.
ÁFANGARí
S JÁLFST ÆÐISB ARÁTTU N NI
Nú þykir Hrafnseyri ágætust af því að
þar fæddist Jón Sigurðsson forseti 17.
júní 1811.
Forsetanafnið festist fyrst við Jón
Sigurðsson meðal Hafnar-lslendinga
sem forseta Kaupmannahafnar-deildar
Hins íslenska bókmenntafélags. Sú
stofnun átti drjúgan þátt í íslenskri
menningarsögu um þær mundir.
Jón Sigurðsson er svipmestur manna
í sjálfstæðisbaráttu íslendinga og merk-
ustu áfangar hennar tengjast mjög nafni
hans og minningu.
Alþingi það sem endurreist var 1845
var aðeins ráðgefandi. Gildi þess var
einkum að vera umræðugrundvöllur ís-
lenskra þjóðmála og leiða í Ijós óskir ís-
lendinga og rökstyðja þær.
Svo kom stjórnarskráin 1874 með
löggjafarvald og fjárveitingavald fyrir Al-
þingi. Síðan gat ekkert orðið að lögum á
íslandi nema þingið hefði samþykkt það.
Hins vegar gat konungur neitað að und-
irskrifa samþykkt Alþingis og það gerði
hann ef ríkisstjórn Damerkur vildi. Og
það var oft.
1904 fengum við heimastjórn og
þingræði. íslenskur ráðherra með aðset-
ur í Reykjavík varð að styðjast við meiri-
hluta á Alþingi. Enn var stöðvunarvald í
Kaupmannahöfn.
1918 varð ísland fullvalda ríki. Sam-
bandslögin veittu ísiendingum rétt til að
segja samningnum upp að 25 árum liðn-
um.
Á grundvelli þeirra laga varð ísland
sjálfstætt lýðveldi 17. júní 1944.
SAFN
JÓNS SIGURÐSSONAR
Á Hrafnseyri er nú safn til minningar
um ævi og starf Jóns Sigurðssonar.
Jón Sigurðsson
lærði heima hjá föður
sínum og tók síðan
stúdentspróf hjá
dómkirkjuprestinum í
Reykjavík. Hann varð
manna fróðastur um
íslenska sögu og
merkasti handrita-
fræðingur (slendinga
um sína daga. Til
sögunnar sótti hann
óhrekjandi rök um að
Danir hefðu auðgast
á yfirráðum á íslandi
og (slendingar ættu
allan rétt til að vera
sjálfstæð þjóð.
Hannes Hafstein,
fyrsti íslenski ráðherr-
ann, orti minningar-
Ijóð vegna aldaraf-
mælis Jóns forseta.
Þar er þetta erindi:
Lengi hafði landið sofið
lamað, heillum svipt og dofið
- fornt var vígið frelsis rofið
farið kapp og horfin dáð.
Þegar loks um álfu alla
árdagsvættir heyrðust kalla
þjóð vor rumska þorði varla
því að enginn kunni ráð
þar til hann kom, fríður, frækinn,
fornri borinn Arnarslóð
bratta vanur, brekkusækinn.
Brjóst hann gerðist fyrir þjóð.
Sumir staðir verða þjóðardýrgripir
vegna þeirrar sögu sem við þá er bundin
og minninga ágætra manna. Hrafnseyri
við Arnarfjörð er í tölu þeirra dýrgripa.
Hún er þjóðardýrgripur sem gott er að
vita skil á. Og í safni Jóns Sigurðssonar
á staðnum geta komumenn nálgast á
undraskömmum tíma merkileg tímamót í
örlagasögu þjóðarinnar.
Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli.
Horft heim að Hrafnseyri. Þar er minjasafn Jóns Sigurðssonar og kapella en til hægri á myndinni
er kirkjan, byggð 1886. í baksýn er fjallið Ánarmúli.
Ljósmynd: Hjálmar R. Bárðarson. - Úr bók hans, Vestfirðir, útg. 1993.
Æ S K A N 7 7