Æskan - 01.04.1994, Síða 18
A ARI FJOLSKYLDUNNAR:
FIÖRKÁLFAR MEO
SKEMMTUN OG SÖNGVARA-
KEPPNI ÆSKUNNAR!
undirbúin og ekki minna í þau lagt en
á svokölluðum „stórskemmtunum" í
Reykjavík. Egill Eðvarðsson aðstoðar
okkur við skipulagið enda þaulvanur
slíku úr Sjónvarpinu og einn sá færasti
í faginu," segir Hemmi.
„Það hefur ekki verið farið áður um
landið með svo viðamikla dagskrá til
að skemmta börnum og fjölskyldu-
fólki,“ segir Ómar.
„Við ætlum að leggja okkur alla fram
um að gera þetta að glæsilegri
skemmtun," bætir Hemmi við. “Enginn
hefur samið eins mikið af barnaefni og
Ómar...“
„Og allir vita hve gott lag Hemmi
hefur á krökkum ...“
„Heyrðu! Við erum ekki komnir
hingað til að hæla hvor öðrum á víxl!
En ég á tryggan stuöning hjá „litla
fólkinu" svo að við þurfum ekki aö
kvíða því.“
Fjörkálfarnir Ómar og Hemmi - hressir að vanda!
Fjörkálfar verða á fleygiferð um
landið í sumar: Hermann Gunnars-
son og Ómar Ragnarsson ásamt
tónlistarmönnunum Hauki Heiðari
og Vilhjálmi Guðjónssyni! Einvalalið!
Þeir ætla að halda skemmtanir á
mörgum stöðum, barna- og fjöl-
skylduskemmtanir með ótal atrið-
um. í tengslum við þær verður efnt
til Söngvarakeppni Æskunnar með
veglegum verðlaunum.
ÞRIGGJA ÁRA HUGMYND
VERÐUR AÐ VERULEIKA!
Þrjú ár eru síðan þessari snilldar-
hugmynd laust niður í kollinn á
Hemma Gunn! En þeir félagar hafa
haft í mörgu að snúast svo að dregist
hefur að hrinda henni í framkvæmd.
Nú er komið að því!
Æskan styður þessa ferð Fjörkálf-
anna enda verður Söngvarakeppni
Æskunnar einn meginþátta í skemmt-
ununum.
Hemmi og Ómar
komu til fundar við
mig í lok apríl. Þeim
var mikið niðri fyrir
og áhuginn geislaði
afþeim...!
„Þetta verður þaul-
skipulögð skemmti-
dagskrá með söng,
gríni og leikjum. Allir
finna áreiðanlega
ótalmargt við sitt
hæfi! Litríkar persón-
ur koma fram og tón-
listin verður að sjálf-
sögðu leikin á staðn-
um en þó fullkomlega
unnin. Við höfum
hæfileikamenn við
hljóðfærin. Atriðin
verða alls ekki síður
í ÆFINGABÚÐUM Á SPÁNI
- Hafið þið ekki unnið áður á þenn-
an hátt?
„Við höfum oft komið fram saman
en ekki efnt til skemmtana eins og
þessarar. Þó höfum við góða sameig-
inlega reynslu af því að fá börn og for-
eldra til að skemmta sér saman. Þaö
var á Spáni!“ segir Hemmi.
„Já, við höfum hitað upp í æfinga-
búðum erlendis árum sarnan!" eykur
Ómar við.
- Hvenær leggið þið af stað?
„Fyrsta skemmtunin verður 9. júlí á
Dalvík eða Siglufirði, önnur á Akureyri
10. júlí.“
- Hvernig verður dagskráin?
„Hún verður fléttuð saman úr söng
og leiknum atriðum sem við flytjum,
Auk þess fáum við fólkið í salnum til
að sprella með okkur á ýmsan hátt.
Best að segja ekkert nánar frá því að
sinni. Það á að koma á óvart. Auk
þess verður söngvarakeppni og ó-
væntir viðburðir í lokin ...“
SÖNGVARA-
KEPPNI
ÆSKUNNAR
Hvernig fer
söngvarakeppnin
fram?
„Klukkan tíu um
morguninn fá krakkar
tækifæri til að taka
þátt í undankeppni.
Það verður auglýst
rækilega þar sem við
skemmtum. Söngv-
arakeppni Æskunnar
er fyrir krakka sem
fæddir eru 1981 og
síðar. Þeir geta valið
úr 60 lögum til að
syngja fyrir hljómlist-
armennina okkar -
við undirleik þeirra.
7 8 Æ S K A N